Clear Lake |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, V-hálsmáli og I-cord. Stærð XS - XXL.
DROPS 250-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. KANTLYKKJUR I-CORD HÆGRA FRAMSTYKKI: RÉTTA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju slétt, prjónið út umferðina. KANTLYKKJUR I-CORD VINSTRA FRAMSTYKKI: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið út umferðina. RANGA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. I-CORD AFFELLING: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord við stykkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Bakstykkið er látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er prjónað fyrst í 2 hlutum. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram hægri öxl, prjónið samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á vinstri öxl. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama prjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveginn. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 26-28-28-32-34-34 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 24-26-28-30-32-36 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 74-80-84-92-98-106 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 12-13-13-14-13-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-4-4 sinnum = 78-84-90-98-106-114 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með hægri öxl (séð þegar flíkin er mátuð): Prjónið upp 24-26-28-30-32-36 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá E í teikningu með máli). Öll mál á lengdina eru gerð héðan! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, 3 KANTLYKKJUR Í I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út til hægri í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 4 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 13-14-14-16-17-17 sinnum = 37-40-42-46-49-53 lykkjur. Þegar síðasta umferð með útaukningu hefur verið prjónuð, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 24-26-28-30-32-36 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá D í teikningu með máli). Öll mál á lengdina eru gerð héðan! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 3 KANTLYKKJUR Í I-CORD – lesið útskýringu að ofan, sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út til vinstri í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á eftir 4 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 13-14-14-16-17-17 sinnum = 37-40-42-46-49-53 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 37-40-42-46-49-53 lykkjur frá vinstri öxl, setjið lykkjur frá hægri öxl á vinstri prjón og prjónið þær síðan í sléttprjóni = 74-80-84-92-98-106 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 36-39-41-45-48-52 lykkjur slétt, setjið næstu lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt, prjónið síðustu 36-39-41-45-48-52 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 22-23-23-24-25-26 cm. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-4-4 sinnum = 78-84-90-98-106-114 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 24-25-26-27-29-30 cm. Endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 78-84-90-98-106-114 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir 78-84-90-98-106-114 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi) = 164-176-192-208-228-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-232-256-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá efst á öxl inn að hálsmáli. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-6 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl). Öll mál á lengdina eru gerð héðan! Notið hringprjón 5, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 68-74-80-82-90-94 lykkjur í kringum handveg – passið uppá að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur meðfram handvegi hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form. Byrjið mitt undir ermi. Umferð 1 (rétta): Prjónið 9-10-10-10-11-11 lykkjur fram hjá merki, snúið stykki. Umferð 2 (ranga): Prjónið 9-10-10-10-11-11 lykkjur fram hjá merki, snúið. Umferð 3 (rétta): Prjónið 10-11-8-6-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Umferð 4 (ranga): Prjónið 10-11-8-6-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til prjónaðar hafa verið 29-32-34-34-36-36 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi (nú hefur verið snúið við 3-3-4-5-6-6 sinnum í hvorri hlið). Prjónið frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið síðan í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 5-5-6-7-7-7 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 4½-3½-2½-2½-2-1½ cm 6-8-9-9-11-12 sinnum, fækkið alls 8-10-12-12-15-16 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 46-46-46-44-43-42 cm. Það eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 52-52-52-50-49-48 cm. I-CORD KANTUR Í HÁLSMÁLI að aftan: Notið hringprjón 5 og fitjið upp 2 lykkjur á prjóninn með 1 þræði í hvorri tegund, prjónið síðan upp lykkjur meðfram kanti í hálsmáli að aftan, byrjið við aðra axlalínuna frá réttu og prjónið upp innan við 1 lykkju að hinni axlalínunni. Prjónið upp ca 24-26-28-30-32-36 lykkjur. Klippið þráðinn. Byrjið í hinni hliðinni þar sem lykkjur voru fitjaðar upp og fellt var af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Pia wrote:
Hello? Can you pls answer my question below?
31.05.2024 - 22:20Pia wrote:
Ok tack. Tyvärr visar videon den vänstra axeln och ni säger att man skall börja med den högra. Men det kanske inte spelar ngn roll?
23.05.2024 - 14:36Pia wrote:
Har stickat fram till FRAMSTYCKE förstår inte vad ”sticka upp” betyder och var börjar jag när det står innanför yttersta maskan? Finns det ngn video som visar? Stickar man alltså styckena för sig eller sätta de ihop?
22.05.2024 - 20:45DROPS Design answered:
Hej Pia, ja du finder hvert moment i videoerne øverst i opskriften, klik på Video. Her ser du den du spørger om: Europeisk axel #2
23.05.2024 - 14:08Pia wrote:
Jag stickar på modell Clearing lake. Markerade small i utskriften (står S på framsidan i fet stil) och går efter ringarna som markerats. Nu när jag kommit halvvägs ser jag att det är den första ringen som är markerad?! Är det xs jag stickar efter? Hur gör jag? Vilket mått skall jag följa? Så tröttsamt… Mvh Pia
09.05.2024 - 14:10DROPS Design answered:
Hei Pia. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Det er nå ordnet. Den første størrelsen er XS. mvh DROPS Design
13.05.2024 - 12:41Jaana wrote:
Hei! Miten työ on tarkoitus viimeistellä; upottamalla veteen/kastelemalla, höyryttämällä vai miten?
05.05.2024 - 19:09DROPS Design answered:
Hei, kostuta neule tai höyrytä se kevyesti.
06.05.2024 - 17:25Jaana wrote:
Hei! Kiitos kauniista mallista! Onko mallitilkku tarkoitus neuloa nro 4:n vai 5:n puikoilla?
05.03.2024 - 13:50DROPS Design answered:
Hei, mallitilkku neulotaan puikoilla nro 5.
05.03.2024 - 17:18Eliane Harribaud wrote:
Bonjour pourquoi tout les modèles se tricotent de haut en bas Je suis une grand mère qui a l habitude de travailler de Bas en haut alors je suis limitée dans les modèles dommage
27.02.2024 - 15:21DROPS Design answered:
Bonjour Mme Harribaud, nous essayons de répondre à la demande des tricoteuses en proposant aussi bien des modèles tricotés de haut en bas que des modèles tricotés de bas en haut, retrouvez par exemple tous nos pulls tricotés de bas en haut (y compris de la dernière collection) ici. Bon tricot!
27.02.2024 - 16:22Linnea wrote:
The fields sweater
19.01.2024 - 14:53Ana wrote:
Forget-me-not
18.01.2024 - 23:43Val wrote:
Alpin Dew
18.01.2024 - 17:16