DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki |
836.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki 836.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Weekend Getaway |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með laskalínu, klauf í hlið og röndum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS 169-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: Prjónaðar eru rendur á fram- og bakstykki og ermum þannig: Prjónið 9-9-10-10-11-11 cm með litnum natur. Prjónið 9-9-10-10-11-11 cm með litnum ljós sægrænn. Prjónið síðan með litnum natur til loka. LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: ATH: Allir uppslættir eru prjónaðir slétt í næstu umf svo það myndist gat! Aukið út um 2 l þannig: Á undan 1. og 3. prjónamerki: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l sl í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl. Á eftir 2. og 4. prjónamerki: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl í næstu umf. Aukið síðan út umf 1 l þannig: Á undan 1. og 3. prjónamerki: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl. Á eftir 2. og 4. prjónamerki: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. LASKALÍNA Á ERMI: Aukið út um 1 l á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út umf 1 l á undan 2. og 4. prjónamerki: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat! ÚRTAKA: Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni ofan frá og niður að klauf á fram- og bakstykki. Síðan er stykkinu skipt upp í framstykki og bakstykki og prjónað er fram og til baka til loka. ATH: Byrjun umf = miðja að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 80-80-85-85-90-90 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós sægrænn. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan 4 umf með stroff (2 l sl, 3 l br). Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 1 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 18-20-21-25-24-30 l jafnt yfir = 98-100-106-110-114-120 l. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið fyrstu 15-16-16-16-17-18 l (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, prjónið næstu 18-18-20-22-22-24 l (= ermi), setjið 2. prjónamerki, prjónið næstu 31-32-33-33-35-36 m (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, prjónið næstu 18-18-20-22-22-24 l (= ermi), setjið 4. prjónamerki, prjónið þær 16-16-17-17-18-18 l sem eftir eru (= hálft bakstykki). Í næstu umf byrjar útaukning fyrir laskalínu. ATH: Aukið er út mismunandi á ermum og fram- og bakstykki – LESIÐ LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI og LASKALÍNA Á ERMI! Aukið út þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan 1. prjónamerki, prjónið 2 l sl í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl í næstu l, prjónið þar til 3 l eru eftir á undan 3. prjónamerki, prjónið 2 l sl í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 2 l á undan 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl í næstu l, prjónið þær l sem eftir eru í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf þannig: Á ermum 14-15-16-17-19-20 sinnum til viðbótar (= alls 15-16-17-18-20-21 sinnum), á fram- og bakstykki með 2 l 7-9-11-14-16-20 sinnum til viðbótar (= alls 8-10-12-15-17-21 sinnum) og síðan er aukið út um 1 l á fram- og bakstykki 7-6-5-3-3-0 sinnum. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 250-268-290-314-342-372 l í umf og stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá hálsmáli fyrir miðju að framan og niður. Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 38-42-45-49-54-60 l (= hálft bakstykki) setjið næstu 48-50-54-58-62-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi, prjónið næstu 77-84-91-99-109-120 l (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-58-62-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi, prjónið þær 39-42-46-50-55-60 l sem eftir eru á prjóni (= hálft bakstykki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 170-184-198-214-234-256 l í umf. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm prjónið þá þannig: Prjónið 39-43-46-50-55-61 l sléttprjón, prjónið 6 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 79-86-93-101-111-122 l sléttprjón, prjónið 6 l garðaprjón, prjónið sléttprjón yfir þær 40-43-47-51-56-61 l sem eftir eru. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þær 6 l í hvorri hlið (= yfir klauf). Nú er stykkinu skipt í framstykki og bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 42-46-49-53-58-64 l eins og áður (þ.e.a.s. sléttprjón með 3 l garðaprjón í hlið), snúið við og prjónið til baka yfir 85-92-99-107-117-128 l (þær 3 fyrstu og síðustu l eru prjónaðar í garðaprjóni) = bakstykki. Setjið næstu 85-92-99-107-117-128 l á þráð fyrir framstykki. Haldið áfram fram og til baka yfir l á prjónið þar til stykkið mælist 42-43-44-48-46-47 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5 og aukið er út um 13-16-19-21-21-25 l jafnt yfir (en ekki yfir 3 síðustu l) = 98-108-118-128-138-153 l. Prjónið 1 umf til baka síðan er prjónað stroff (2 l sl, 3 l br) með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið. ATH: Byrjið og endið á 2 l sl áður innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið! Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl. Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið eins og bakstykki. ERMI: Ermin er prjónuð í sléttprjóni, í hring á sokkaprjóna. Það eru 48-50-54-58-62-66 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5 og fitjið upp 8 l undir ermi = 56-58-62-66-70-74 l. Prjónið sléttprjón og rendur eins og á fram- og bakstykki í hring, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi (þ.e.a.s. 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili 10-10-12-13-14-15 sinnum til viðbótar = 34-36-36-38-40-42 l. Þegar ermin mælist 45-45-45-45-44-44 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og aukið út um 6-4-9-7-5-8 l jafnt yfir í umf = 40-40-45-45-45-50 l. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) í 6 cm. Þegar ermin mælist 51-51-51-51-50-50 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (46)
Kristine Bergsland wrote:
Hei, skulle gjerne sett flere bilder av denne modellen. Fra bakside, og et bedre bilde av hvordan den ser ut nederst. Vh. Kristine
25.02.2024 - 10:09Nora wrote:
Nora wrote a correction:: Oh no! I was doubling the 2 Xtra stitches for the body ineases, at each side of each PLACE MARKER instead of 4 inside the each body sections and 2 on each side of each sleeve section = 12 total.! That is why the raglan line did not line up !! :( I will have to unravel and only double the 2 stitches inside the body panes and only double one on the slee e sides.!!! Thank you for your patience. I just dont want to give up yet.
18.10.2023 - 22:15Nora wrote:
Oh no! I was doubling the 2 Xtra stitches for the body ineases, at each side of each!!! That is why the raglan line did not line up !! :( I will have to unravel and only double the 2 stitches inside the body panes only!!!
17.10.2023 - 20:55Nora wrote:
Thank you for your answer about the raglan increases! It helped :) Now, about the body increases. So there are 2 increases (1 on each side of the sleeve markers, totaling 8 stitches added for a certain number of rows per size. Then, it changes time only 2 increases on each side of the markers for a total of 4 increases, for a certain number of rows, correct?
16.10.2023 - 17:21DROPS Design answered:
Dear Nora, correct the increases are done on a different rhythm on body and on sleeves, but you will increase either 2 sts or 1 stitch on body and only 2 st on each sleeve, so when increasing 2 sts on body you will increase 12 sts (2 sts at the beg of front/back piece + 2 sts at the end of front/back piece + 1 st at the beg of sleeves + 1 st at the end of sleeves). Then you will increase only 1 stitch at the beg + 1 st at th end of front/back piece (and still 1 st on each side of sleeve). Happy knitting!
17.10.2023 - 09:15Nora wrote:
I don't understand the body increases: Before 1st and 3rd marker: Work until 3 sts remain before marker, K 2 in next st, 1 YO, K 2. After 2nd and 4th marker: K 2, 1 YO, K 2 in next st. K2 in next stitch means that you k and k through the back loop? And add a nee stitch in addition to yhe YO?
14.10.2023 - 06:43DROPS Design answered:
Dear Nora, yes, you knit 1 stitch in the front loop and 1 stitch in the back loop. And yes, you will have 2 new stitches for every marker (As shown in the RAGLAN BODY tip, you inc 2 sts on each marker). Happy knitting!
16.10.2023 - 00:28Jasmine L Copeland wrote:
Hi it is unclear to me when to do inc 1 or inc 2 for the raglan body. I am knitting a small
18.03.2023 - 12:05DROPS Design answered:
Dear Jasmine, the first 8 times (rounds) that you increase on the body, you will increase 2 stitches, before the 1st and 3rd markers and after the 2nd and 4th markers (as indicated in RAGLAN BODY). After having worked these increases 8 times, the next time you increase on the body you will increase only 1 stitch at each marker. You will continue with this increase 7 times in total (so 6 more times). Happy knitting!
19.03.2023 - 20:25Pat Lampron wrote:
Now I get it !!! Sorry, really dumb when it comes to math (and I’m knitting???) anyway it finally clicked after reading your explanation several times and the instructions a few dozen!!! One less sweater I have to rip out... thanks so much!!!
15.10.2020 - 18:31Pat Lampron wrote:
In answer to your question I’m working on a large and then will be making a medium...
15.10.2020 - 11:25DROPS Design answered:
Dear Mrs Lampron, in size L you cast on 85 sts and increase 21 sts evenly = 106 sts - you then increase for raglan: 2 sts on each sleeve a total of 17 times = 2 x17x2 sleeves = 68 sts inc. Then on body: 4 sts x 12 x 2 (front/back) = 96 sts + 2 sts x 5 x 2 (front/back) = 20 sts = 106+68+96+20=290 sts. Hope this will help you!
15.10.2020 - 11:58Pat Lampron wrote:
I’m working on this pattern and numbers don’t seem to be adding up in regard to the increases - still working on the beginning before putting sleeve stitches on a holder. If I do the increases the number of times listed, the front and backs definitely don’t add up. Can you look at this and give me some clarification?
14.10.2020 - 21:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Lampron, sure we can explain you, just tell us which size you are working on.
15.10.2020 - 09:04Helene wrote:
Jeg er prøvd flere Drops oppskrifter, og har som regel vært fornøyd. Men denne oppskriften må det være noe galt med. Jeg bruker vanligvis str. S eller M, og la derfor opp 80 masker for å begynne på bærestykket, som oppskriften sier for str. S og M. Etter å ha strikket ferdig vrangborden, er det tydelig at den er altfor liten. Den går ikke over hodet mitt i det hele tatt. Svært misvisende når bildet av modellen viser en genser med ganske vid hals.
03.07.2020 - 22:00