DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9196.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Red Berry Hill

Prjónuð peysa með röndum, prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum Brushed Alpaca Silk.

DROPS 187-18
DROPS Design: Mynstur as-092
Garnflokkur C + C eða E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
75-75-75-75-100-100 g litur 04, ljós beige
75-75-75-100-100-100 g litur 06, kórall
25-25-25-25-25-25 g litur 07, rauður
50-50-50-50-50-50 g litur 18, kirsuber
25-25-25-25-25-50 g litur 09, fjólublár
25-25-25-25-25-25 g litur 15, ljós sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 12 lykkjur og 16 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9196.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum

RENDUR (hægri ermi, framstykki og bakstykki):
RÖND 1: Prjónið með 2 þráðum ljós beige þar til stykkið mælist 6-7-8-8-9-9 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið síðan rendur þannig:
UMFERÐ 1-4: 1 þráður ljós beige + 1 þráður ljós sægrænn.
UMFERÐ 5-8: 2 þræðir ljós sægrænn.
UMFERÐ 9-10: 1 þráður ljós sægrænn + 1 þráður kirsuber.
UMFERÐ 11-12: 2 þræðir kirsuber.
UMFERÐ 13-14: 1 þráður kirsuber + 1 þráðður kórall.
UMFERÐ 15-22: 2 þræðir kórall.
UMFERÐ 23-30: 1 þráður kórall + 1 þráður ljós beige.
UMFERÐ 31-32: 1 þráður kórall + 1 þráður rauður.
UMFERÐ 33-34: 2 þræðir rauður.
UMFERÐ 35-36: 1 þráður rauður + 1 þráður kirsuber.
UMFERÐ 37-40: 2 þræðir kirsuber.
UMFERÐ 41-42: 1 þráður kirsuber + 1 þráður fjólublár.
UMFERÐ 43-44: 2 þræðir fjólublár.
UMFERÐ 45-48: 2 þræðir ljós beige.
UMFERÐ 49.-54: 1 þráður ljós beige + 1 þráður kórall.
UMFERÐ 55-58: 2 þræðir kórall.
UMFERÐ 59-60: 2 þræðir rauður.
UMFERÐ 61-62: 1 þráður kórall + 1 þráður ljós beige.
UMFERÐ 63-68: 2 þræðir ljós beige.
UMFERÐ 69-70: 1 þráður ljós beige + 1 þráður fjólublár.
UMFERÐ 71-72: 2 þræðir fjólublár.
UMFERÐ 73-74: 2 þræðir ljós sægrænn.
UMFERÐ 75-78: 2 þræðir kirsuber.
UMFERÐ 79-84: 1 þráður kirsuber + 1 þráður kórall.
Prjónað er með 2 þráðum kórall til loka.

RENDUR (vinstri ermi, framstykki og bakstykki):
RÖND 1: Prjónið með 2 þráðum ljós beige þar til stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið síðan rendur þannig:
UMFERÐ 1-21: 1 þráður ljós beige + 1 þráður kórall.
UMFERÐ 22-25: 2 þræðir kórall.
UMFERÐ 26-31: 1 þráður ljós kórall + 1 þráður ljós beige.
UMFERÐ 32-33: 2 þræðir fjólublár.
UMFERÐ 34-35: 1 þráður kórall + 1 þráður rauður.
UMFERÐ 36-37: 2 þræðir rauður.
UMFERÐ 38-39: 2 þræðir kórall.
UMFERÐ 40-43: 2 þræðir kirsuber.
UMFERÐ 44-47: 2 þræðir ljós sægrænn.
UMFERÐ 48-51: 1 þráður ljós sægrænn + 1 þráður ljós beige.
UMFERÐ 52-55: 2 þræðir ljós beige.
UMFERÐ 56-57: 1 þráður ljós beige + 1 þráður kirsuber.
UMFERÐ 58-61: 2 þræðir kirsuber.
UMFERÐ 62-63: 2 þræðir ljós sægrænn.
UMFERÐ 64-65: 2 þræðir fjólublár.
UMFERÐ 66-67: 1 þráður fjólublár + 1 þráður ljós beige.
UMFERÐ 68-69: 2 þræðir ljós beige.
UMFERÐ 70-71: 1 þráður ljós beige + 1 þráður kórall.
UMFERÐ 72-73: 2 þræðir kórall.
UMFERÐ 74-75: 1 þráður kórall + 1 þráður ljós beige.
UMFERÐ 76-79: 2 þræðir ljós beige.
UMFERÐ 80-81: 1 þráður ljós beige + 1 þráður fjólublár.
UMFERÐ 82-83: 2 þræðir fjólublár.
UMFERÐ 84-86: 2 þræðir kirsuber.
UMFERÐ 87-88: 1 þráður kórall + 1 þráður ljós beige.
Prjónið síðan með 2 þráðum kórall til loka (= ca 3-3-3-4-4-5 cm + 4 umferð með garðaprjóni á bakstykki og 8 umferðir í garðaprjóni á framstykki).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónuð eru 2 stykki frá hlið frá ermum að miðju að aftan/miðja að framan. Peysan er saumuð saman við miðju að aftan. Allt stykkið er prjónað með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk.

HÆGRI ERMI, FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 36-38-38-40-42-42 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum ljós beige. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónaðar eru RENDUR (hægri ermi, framstykki og bakstykki) – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFEESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-10-10-10-9 cm eru fitjaðar upp lykkjur í lok umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju í 6. hverri umferð 6-5-5-4-3-2 sinnum, 1 lykkja í annarri hverri umferð 7-9-9-11-13-14 sinnum og 31-32-34-35-35-37 lykkjur 1 sinni = 124-130-134-140-144-148 lykkjur. Stykkið mælist ca 40-39-38-36-35-32 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með rendur og prjónið sléttprjón með 4 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (= neðst á fram- og bakstykki). Þegar stykkið mælist 14-16-17-20-21-25 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, 52-55-56-59-60-62 lykkjur sléttprjón, setjið 56-59-60-63-64-66 lykkjur á framstykki á þráð, fellið af næstu 9-9-10-10-11-11 lykkjur (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir hálsmáli á framstykki og 3 lykkjur fyrir hálsmáli á bakstykki), prjónið sléttprjón yfir næstu 55-58-60-63-65-67 lykkjur, 4 lykkjur garðaprjón. Nú eru 59-62-64-67-69-71 lykkjur fyrir bakstykki.

HÆGRA BAKSTYKKI:
= 59-62-64-67-69-71 lykkjur. Haldið áfram með rendur, sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsmáli og 4 lykkjur í garðaprjóni að neðri kanti eins og áður. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 58-61-63-66-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-29-31-35 cm frá prjónamerki eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Stykkið mælist alls 64-65-66-67-68-69 cm frá uppfitjunarkanti á ermi. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 56-59-60-63-64-66 lykkjur. Byrjið frá röngu (við háls) og haldið áfram með rendur, sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsmáli og 4 lykkjur garðaprjón að neðri kanti eins og áður, JAFNFRAMT eru felldar af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig:
Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 52-55-56-59-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-29-31-35 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Fellið síðan af fyrir hnappagötum þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 8-6-7-5-6-8 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-7-7-8-8-8 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2: Allar lykkjur og allur uppsláttur er prjónaður slétt.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Stykkið mælist 26-28-30-33-35-39 cm (= alls 66-67-68-69-70-71 cm frá uppfitjunarkanti á ermi). Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja.

VINSTRI ERMI, FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 36-38-38-40-42-42 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum ljós beige. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið RENDUR (vinstri ermi, framstykki og bakstykki) – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-10-10-10-9 cm fitjið upp lykkjur í lok umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju í 6. hverri umferð 6-5-5-4-3-2 sinnum, 1 lykkja í annarri hverri umferð 7-9-9-11-13-14 sinnum og 31-32-34-35-35-37 lykkjur 1 sinni = 124-130-134-140-144-148 lykkjur. Stykkið mælist ca 40-39-38-36-35-32 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með rendur og prjónið sléttprjón með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hið (= neðst á fram- og bakstykki). Þegar stykkið mælist 14-16-17-20-21-25 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, 55-58-60-63-65-67 lykkjur sléttprjón, setjið 59-62-64-67-69-70 lykkjur á þráð fyrir bakstykki, fellið af næstu 9-9-10-10-11-11 lykkjur (= 3 lykkjur fyrir hálsmáli á bakstykki og 6-6-7-7-8-8 lykkjur fyrir hálsmáli á framstykki), 52-55-56-59-60-62 lykkjur sléttprjón, 4 lykkjur garðaprjón. Nú eru 56-59-60-63-64-66 lykkjur fyrir framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 56-59-60-63-64-66 lykkjur. Haldið áfram með rendur, sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni í hálsmáli og 4 lykkjur í garðaprjóni að neðri kanti eins og áður, JAFNFRAMT eru felldar af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur, 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 52-55-56-59-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-29-31-35 cm prjónið 8 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Stykkið mælist 26-28-30-33-35-39 cm (= alls 66-67-68-69-70-71 cm frá uppfitjunarkanti á ermi). Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja.

VINSTRA BAKSTYKKI:
= 59-62-64-67-69-71 lykkjur. Byrjið frá röngu (við hálsmál) og haldið áfram með rendur, sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsi og 4 lykkjur í garðaprjóni að neðri kanti eins og áður. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 58-61-63-66-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-29-31-35 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Stykkið mælist 64-65-66-67-68-69 cm frá uppfitjunarkanti á ermi. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja.

FRÁGANGUR:
Saumið saum við miðju að aftan innan við affellingarkantinn á hvoru bakstykki. Saumið saum undir ermum og hliðarsaum innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni/ystu lykkju. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 54-54-60-60-68-68 lykkjur frá réttu með hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum kórall. Prjónið 2 umferðir slétt fram og til baka. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2018
Leiðrétting: Búið að leggja til kant í hálsi
Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2018
Leiðrétting: Lykkjufjöldi hefur verið leiðréttur undir VINSTRI ERMI, FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI.

Mynstur

symbols = prjónstefna á vinstri ermi, framstykki og bakstykki
symbols = prjónstefna á hægri ermi, framstykki og bakstykki
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Red Berry Hill

Jane, United Kingdom

Red Berry Hill

Sonja, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Regina Holz wrote:

Eine Frage zu dieser wunderschönen Jacke - wie vernähe ich denn am Besten die vielen Fäden, die dabei entstehen werden?

15.04.2024 - 14:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Holz, wir haben Videos, die zeigen, wie man die Fäden vernäht: hier wenn man glatt rechts strickt und hier wenn man kraus rechts strickt. Hoffentlich kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim Stricken!

15.04.2024 - 16:02

country flag Loyau wrote:

Pourquoi +le modèle est grand et moins il y a d'augmentations ou de cm? Expemple:"quand l'ouvrage mesure 11-11-10-10-10-9 cm, monter à la fin de chaque rang de chaque côté ainsi: 6-5-5-4-3-2 fois 1 maille" et"L'ouvrage mesure environ 40-39-38-36-35-32 cm". Merci

06.01.2024 - 19:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Loyau, dans les grandes tailles, les épaules seront plus larges, on aura donc besoin de moins augmenter pour les manches qui seront plus courtes. Retrouvez toutes les mesures finales pour chaque taille (et chaque partie) dans le schéma des mesures. Bon tricot!

08.01.2024 - 10:21

country flag Sue wrote:

Hello, Could you suggest a suitable alternative colour for the discontinued 09 purple. Thank you

22.07.2023 - 12:53

DROPS Design answered:

Hi, I suggest colour 23. Happy knitting!

22.07.2023 - 19:34

country flag Karin Corthouts wrote:

Ik wil dit vest breien maar heb eigen gesponnen alpaca garen in verschillende kleuren, samen 1150m te breien met 4,5 naalden. Is dit genoeg om dit vest te breien met iets langere mouwen?

22.10.2021 - 14:26

DROPS Design answered:

Dag Karin,

Je kunt de totale hoeveelheid benodigde garen in de maat die je wilt breien bij elkaar optellen en dan kijken hoeveel looplengte je nodig zou moeten hebben. Dus het aantal bollen keer de looplengte. Omdat je hier met een dubbele draad breit, neem je de helft daarvan. Dan moet je nog wat extra hebben voor de mouwen.

22.10.2021 - 17:28

country flag Lundee wrote:

Merci pour ce beau modèle ! réalisé en couleurs 'automne'. En taille M, après échantillon à l'aiguille circulaire n°8 en aller-retour.. Le gilet cousu pèse 196g sans boutons. Pour celles qui veulent le tricoter en une seule couleur.

24.08.2021 - 17:24

country flag Sandra wrote:

Hallo ich habe angefangen die Jacke in der Größe XXL zu stricken. Ich habe eine Frage zur Zunahme am rechten Ärmel. Die Zunahmen erfolgen ja beidseitig kaut Anleitung in jeder 2ten und 6ten Reihe. Das heißt ja das ich 2 Maschen in Reihe 2, 2 weitere in Reihe 4 und insgesamt 4 Maschen in Reihe 6 ( 2 in jeder 2ten und 2 in jeder 6ten Reihe) aufnehme. Ist das korrekt? Vielen Dank schon mal vorab.

06.10.2020 - 20:11

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, in XXL schlagen Sie nach 10 cm 1 neue Mache am Ende der nächsten 2 Reihen an, dann stricken Sie 4 Reihen ohne Zunahmen, diese 6 Reihen noch 2 Mal wiederholen, dann schlagen Sie 1 Masche am Ende der 2 nächsten Reihen an und diese 2 Reihen 13 Mal stricken, und dann schlagen Sie 35 Maschen am Ende der 2 nächsten Reihen = 42 + 2x3 + 2x13 + 2x35=144 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

07.10.2020 - 08:16

country flag Isabel wrote:

I am knitting this cardigan, size M and I agree with Clara and others that there is definitely not enough of the coral wool to complete the garment as stated in the pattern. However I have found that there is way too much cerise.

28.06.2020 - 13:10

country flag Clara wrote:

Materiaal wat bij mijn maat hoort besteld. Nu blijkt dat ik niet genoeg wol hebt voor dit vestje te breien. Er staat wel dat er met 2 draden wordt gebreid. Aangenomen dat dit ook mee genomen is in de te bestellen wol. Er zijn 3 kleuren wat echt niet gaat om die met 2 draden dezelfde kleur te breien. Moest hetzelfde aantal te bestellen wol dan 2x bestellen Zo ja is het onhandig om dit niet vermeld te hebben. Graag zie ik het antwoord in hoe nu verder.

02.03.2020 - 11:13

DROPS Design answered:

Dag Clara,

Als ik het zo bekijk zou de hoeveelheid garen wel moeten kloppen. Als er met meerdere draden gebreid wordt is hier al rekening mee gehouden in de patronen (dus je hoeft nooit het dubbele te bestellen).

10.03.2020 - 19:30

country flag Klaasje wrote:

Met wat voor streeppatroon ga je verder na de markeerdraad?

14.02.2020 - 10:39

DROPS Design answered:

Dag Klaasje,

Je gaat gewoon verder met het streeppatroon waar je mee bezig was. Dus als je bij de rechter mouw en het voor- en achterpand bent ga je verder met de strepen voor dat gedeelte, zoals bovenaan bij 'informatie voor het patroon' beschreven.

23.02.2020 - 19:46

country flag Milaine wrote:

Bonsoir Je viens de le réaliser, il est magnifique et les couleurs vont très bien ensemble Par contre pour la taille L, je recommande de prendre une pelote de couleur corail en plus Je n'avais pas assez de laine couleur corail pour le col, il ne m'en manquait pas beaucoup, j'ai fait le col en couleur cerise Sinon le gilet est beau, chaud et doux Merci pour ce beau modèle

12.06.2019 - 21:59