Copper Harbor |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með hnútamynstri og ¾-löngum blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-38 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 8, 15, 22 og 29 cm M: 6, 14, 22 og 30 cm L: 7, 15, 23 og 31 cm XL: 6, 13, 20, 27 og 34 cm XXL: 7, 14, 21, 28 og 35 cm XXXL: 9, 16, 23, 30 og 37 cm ATH: Síðasta hnappagatið sem ekki er með í útskýringu að ofan, er gert í kanti í hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, upp að handveg. Síðan eru framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum. Ermar eru saumaðar í. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í perluprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 211-227-243-275-291-323 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið PERLUPRJÓN fram og til baka í 2 cm – sjá útskýringu að ofan og endið eftir umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni, prjónið A.1A (= 12 lykkjur), prjónið A.1B þar til 16 lykkjur eru eftir í umferð (= 11-12-13-15-16-18 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið A.1C (= 9 lykkjur og endið með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina, mælist stykkið ca 20 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni, prjónið A.2A (= 4 lykkjur), prjónið A.2B þar til 16 lykkjur eru eftir í umferð (= 23-25-27-31-33-37 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2C (= 9 lykkjur) og endið með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – A.2 er endurtekið á hæðina til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 53-57-61-69-73-81 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 93-101-109-125-133-149 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 53-57-61-69-73-81 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki). Framstykkin og bakstykkið er síðan prjóna til loka hvert fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar stykkið er mátað): = 53-57-61-69-73-81 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan. Að auki er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkju 2-3-4-6-4-6 sinnum = 49-50-51-52-55-57 lykkjur eftir. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp með heilli mynstureiningu í hlið, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm. Í næstu umferð frá réttu eru ystu 16-16-17-17-18-18 lykkjurnar við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn frá, eru allar þessar lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til framstykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar stykkið er mátað): = 53-57-61-69-73-81 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 7 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan. Að auki er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-6-4-6 sinnum = 49-50-51-52-55-57 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm. Í næstu umferð frá röngu eru ystu 16-16-17-17-18-18 lykkjurnar við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn frá, eru þessar lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til framstykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. BAKSTYKKI: = 93-101-109-125-133-149 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-6-4-6 sinnum í hvorri hlið = 85-87-89-91-97-101 lykkjur eftir. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu í hvorri hlið, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Í næstu umferð eru miðju 37-37-39-39-41-41 lykkjurnar felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til bakstykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 57-61-65-69-73-77 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið perluprjón hringinn í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónuð er 1 lykkja slétt bæði framan og aftan í allar lykkjur (lykkjufjöldinn tvöfaldast) = 114-122-130-138-146-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 6 cm í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4-4-3-3-3-3 hverri umferð alls 17-19-20-21-21-22 sinnum = 80-84-90-96-104-110 lykkjur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 25-24-24-23-23-22 cm, aukið út um 16-16-18-18-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð – sjá ÚTAUKNING. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 96-100-108-114-124-130 lykkjur. Þegar ermin mælist 34-33-33-31-31-30 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið nú ermakúpu fram og til baka á hringprjóna 3 eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 3-4-4-4-4-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-7-10-9-10 sinnum, 2 lykkjur 4-4-3-3-3-4 sinnum og síðan 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið = 48-48-54-54-60-60 lykkjur eftir. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón, prjónið næstu 32-32-36-36-40-40 lykkjur slétt saman 2 og 2 (= 16-16-18-18-20-20 lykkjur færri) og prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón = 32-32-36-36-40-40 lykkjur eftir. Fellið af. Ermin mælist ca 42-42-43-43-43-43 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSI: Prjónið upp frá réttu ca 113 til 129 lykkjur í kringum kant í hálsmáli (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á hringprjóna 2,5 með Alpaca. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið perluprjón fram og til baka í 2 cm – stillið af að perluprjónið haldi fallega áfram yfir kanta að framan og fellið jafnframt af fyrir síðasta hnappagatinu á hægri kanti að framan (í fyrstu umferð frá réttu). Fellið af í perluprjóni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Ladoucette Melissa wrote:
Bonjour je souhaiterais tricoter ce modèle 2 tailles en dessous , c’est à dire au lieu de démarrer avec 211 mailles je commence par 179 mailles… mais je n’arrive pas à calculer les diminutions… merci de votre aide . À bientôt
14.10.2023 - 18:54Kate wrote:
Hi, in this pattern it says "When the sleeve measures 6 cm in all sizes, decrease 2 stitches under the sleeve". Is this 6cm total including cuff, or 6cm from end if cuff? Thanks!
10.05.2022 - 23:58DROPS Design answered:
Hi Kate, This measurement is from the cast-on edge. Happy knitting!
11.05.2022 - 06:48Frederike wrote:
Is het bij de mouw de bedoeling dat ik na het breien van de manchet 1cm brei en dan al ga minderen? Dus bij 6cm totaal, of na 6cm breien vanaf de manchet? Dus 11cm? Vriendelijke groet, Federike
09.01.2022 - 22:20DROPS Design answered:
Dag Frederike,
Je begint met minderen op 6 cm vanaf de opzet, dus 1 cm vanaf de manchet.
11.01.2022 - 09:46Amie wrote:
Hi! Is there any more information on the sizing of this piece, or is it just the flat measurements in the chart? Thank you!
30.06.2021 - 12:36DROPS Design answered:
Dear Amie, measure a similar garment you have and like the shape and compare them to the measurements in the chart, that's the best way to find the matching size. Read more here. Happy knitting!
30.06.2021 - 13:26Zuzana Janska wrote:
Hello, in sleeves you wrote: When the sleeve measures 6 cm in all sizes, decrease 2 stitches under the sleeve . In similar pattern n. 39 you wrote: When the sleeve measures 8 cm in all sizes, decrease 2 stitches under the sleeve . Should it be 6 or 8 cm long?
05.05.2021 - 05:14DROPS Design answered:
Hi Zuzana, The measurement in this pattern is 6 cm. Sleeves vary in shape in the patterns, hence the difference in measurements you have noticed. Happy knitting!
10.05.2021 - 07:50Merike wrote:
Elegant design , why not ´Hyacinth´?
09.01.2021 - 09:41