White Moon Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með gatamynstri á berustykki og kanti í stroffiprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 221-6 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). Mynsturteikningin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 203 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 193 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 10,7. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út þá er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 9, 18, 27 og 36 cm. S: 11, 20, 29 og 38 cm. M: 10, 18, 26, 34 og 42 cm. L: 11, 19, 27, 35 og 43 cm. XL: 8, 17, 26, 35 og 44 cm. XXL: 10, 19, 28, 37 og 46 cm. Síðasta hnappagatið sem ekki er útskýrt að ofan, er fellt af í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Fram- og bakstykki og ermar er sett saman, síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan til loka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 203-221-239-257-279-305 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Cotton Merino eða Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 185-201-217-233-253-277 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 25-28-28-28-28-28 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-53-57-61-67 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 81-89-95-103-111-123 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 46-50-53-57-61-67 lykkjurnar eins og áður (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Cotton Merino eða Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 12-12-12-13-12-14 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-4½-3½-2½-2-1½ cm millibili alls 7-8-9-12-15-16 sinnum = 64-68-72-80-88-92 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-45-44-44-42-41 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur, prjónið 58-62-64-72-78-82 lykkjur sléttprjón og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjurnar. Klippið þráðinn frá og dragið í gegnum síðustu lykkjuna. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón 4,5 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar = 289-313-329-361-389-421 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í umferð – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið í 2-2-3-1-3-4 cm – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 4-8-2-14-0-10 lykkjur jafnt yfir = 285-305-327-347-389-411 lykkjur. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið jafnframt um 1-0-1-0-0-1 lykkju í síðustu umferð = 284-305-326-347-389-410 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 13-14-15-16-18-19 mynstureiningar með 21 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar prjónað hefur verið upp að umferð merktri með ör í A.2A eru 193-207-221-235-263-277 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör í A.2A er fækkað um 13-14-15-14-28-28 lykkjur jafnt yfir = 180-193-206-221-235-249 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 13-14-15-15-16-17 mynstureiningar með 13-13-13-14-14-14 lykkjum), prjónið 1 lykkju sléttprjón og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, eru 128-137-146-146-155-164 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-19-20-22-24-25 cm frá prjónamerki. Prjónið sléttprjón þar til berustykkið mælist 19-19-21-22-24-26 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 27-32-41-33-37-42 lykkjur jafnt yfir = 101-105-105-113-118-122 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff og fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1 cm. Þegar kantur í hálsmáli mælist 3 cm fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 47-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Jo wrote:
"Selkie"
20.01.2021 - 02:03Julie wrote:
Call of the ocean
11.01.2021 - 04:51