River Rapids |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, kúlum og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-7 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 15, 25, 35 og 45 cm M: 5, 13, 21, 29, 38 og 47 cm L: 5, 13, 22, 31, 40 og 49 cm XL: 5, 14, 23, 32, 41 og 50 cm XXL: 5, 14, 23, 32, 42 og 52 cm XXXL: 5, 13, 21, 29, 37, 45 og 54 cm ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 175 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 45) = 3,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan upp að handveg. Síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykki er prjónað til loka hvert fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í kringum handveg og hálsmál. Vestið er prjónað úr 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 175-191-199-215-239-263 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 45-45-45-53-53-53 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 220-236-244-268-292-316 lykkjur. Haldið svona áfram – frá réttu: Stærð S-M-L: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 29-37-41 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 29-37-41 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Stærð XL-XXL-XXXL: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 4 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.2 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 37-49-61 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, A.4 yfir næstu 37-49-61 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.2, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, A.3, 4 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af fyrir handveg þannig – frá réttu: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 55-59-61-67-73-79 lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 98-106-110-122-134-146 lykkjur (= bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur (= vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu og síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á þráð fyrir framstykki og prjónið síðan yfir 98-106-110-122-134-146 lykkjur á bakstykki. Klippið þráðinn. BAKSTYKKI: = 98-106-110-122-134-146 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 3-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-4-5-7 sinnum = 80-88-92-98-104-108 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 22-22-23-25-27-28 lykkjur, prjónið næstu 36-44-46-48-50-52 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur yfir hvert A.1 og 4 lykkjur yfir hvert A.2/A.3 (alls 10-10-14-14-14-14 lykkjur færri yfir kaðla), prjónið síðan síðustu 22-22-23-25-27-28 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-30-32-34-36-38 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 (á við um stærð S, XXL og XXXL) og 4 lykkjur yfir A.2/A.3 (á við um allar stærðir) (6-4-4-4-6-6 lykkjur færri) = 16-18-19-19-21-22 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu. 2 lykkjur 3-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-5-7 sinnum = 46-50-52-55-58-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir 2 fyrstu mynstureiningar af A.1 (við miðju að framan) og 4 lykkjur yfir A.2. Í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 14-16-17-18-19-19 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli (prjónið lykkjurnar fyrst). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-2-2-2-3 sinnum = 20-22-23-25-27-28 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 (í stærð XL, XXL og XXXL) og 4 lykkjur yfir A.3 = 16-18-19-19-21-22 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka síðustu 55-59-61-67-73-79 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu. 2 lykkjur 3-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-5-7 sinnum = 46-50-52-55-58-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir 2 síðustu mynstureiningar af A.1 (við miðju að framan) og 4 lykkjur yfir A.3. Í næstu umferð frá röngu eru fyrstu 14-16-17-18-19-19 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli (prjónið lykkjurnar fyrst). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-2-2-2-3 sinnum = 20-22-23-25-27-28 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir A.1 (í stærð XL, XXL og XXXL) og 4 lykkjur yfir A.2 = 16-18-19-19-21-22 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið tölur í vinstra framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að framan frá réttu. Prjónið upp ca 91 til 101 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram þar til stroffið mælist 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið við hliðarsaum undir handveg og frá réttu. Prjónið upp ca 102 til 126 lykkjur í kringum allan handveginn á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Wil Kerkmeer wrote:
Ik zou deze spencer zo graag in de kleur paardenbloem willen maken en kom dan uit bij Nord ipv Alpaca. Welke kid-silk kleur leent zich goed om te combinere? Zou de limonadekleur er goed bij kleuren of wijkt deze teveel af? En anders in Nepal, hoeveel garen heb ik dan nodig? Vrgr
19.10.2023 - 13:27DROPS Design answered:
Dag Wil,
Voor het vervangen van het garen kun je de garenvervanger gebruiken, deze vindt je onderaan de lijst met materialen bij ieder patroon. Voor de kleur is het ook een beetje een kwestie van persoonlijke smaak ben ik bang. Wat je zou kunnen doen is extra bollen bestellen en welke je niet gebruikt terug sturen.
19.10.2023 - 19:52Helen MCLEAN wrote:
Where can I find the finished measurements for all the different sizes?
06.07.2023 - 03:47DROPS Design answered:
Dear Helen, for the finished measurements please see the sketch below the instructions (measurements are given in the same order as the sizes). Happy knitting!
06.07.2023 - 04:39Rinat wrote:
Hello I have big holes around the bobble, Is that normal?
18.11.2022 - 14:35DROPS Design answered:
Dear Rinat, there might be holes when working bobbles, but when working next row, the holes should be smaller/almost hidden - but to be sure, you can show your work to your store (even sending a picture by mail), or ask other knitters in our DROPS Workshop. Happy knitting!
18.11.2022 - 15:45Janne T wrote:
Ryg og forstykke. Der skulle være 220 masker i smalle, men mønsteret giver 224 masker. Og de 29 masker er et ulige antal, men mønster A4 er beregnet til et lige antal, (deleligt med 2 masker). Har talt sammen flere gange og kan ikke få 220. Hvad gør jeg, hvor er fejlen?
11.06.2022 - 20:59DROPS Design answered:
Hei Janne. Husk at det står at A.4 skal strikkes over 29 masker. Så du strikker ikke en hel rapport av A.4, men over det maskeantallet det står i oppskriften (da starter og slutter det med 1 maske rett). Når du da strikker slik det står, stemmer maskeantallet med 220 masker i str. S. 5+2+4+4+8+4+4+4+8+2+29+2+8+4+4+4+8+4+4+4+8+4+4+4+8+2+29+2+8+4+ 4+4+8+4+4+2+5=220 masker. mvh DROPS Design
13.06.2022 - 10:40Kjersti Swang Unnerud wrote:
Vedr flettemønster. Står kun flette mot venstre på diagrammet. Og diagram A.2 står det ikke som det ser ut på bildet av vesten at det skal være flettemønster før boblene. Vanskelig for å forstå oppskriften her.
06.02.2022 - 21:39DROPS Design answered:
Hej Kjersti, mønstrene strikkes lidt forskelligt i de forskellige størrelser. Hvilken størrelse strikker du? og hvilket diagram mangler du?
09.02.2022 - 10:00Solbjörg Thoresson wrote:
Hej, Om jag vill sticka denna i bara Alpacka i str L, hur mycket garn skall jag köpa då?
25.01.2022 - 09:26DROPS Design answered:
Hei Solbjørg. Om du ønsker å strikke denne med 2 tråder Alpaca må du nesten doble garnmengden i Alpaca for å være sikker. I str. L = ca 650-700 gram. mvh DROPS Design
25.01.2022 - 14:37Lisette wrote:
Encore moi et bien après avoir débuté mon tricot je constate qu il y a des erreurs côté droit et gauche des torsades on devrait plutôt lire : A1, A3 et non A2,A1, A3, A1, A4 au dessus des 37 mailles, A1, A3 et non A2,A1, A3, A1,A3 et non A2, A1,A3, A1,A4 au dessus des 37 m, A1,A3 au lieu de A2, A1, A3 là les deux devants sont pareils …merci
27.11.2021 - 18:26DROPS Design answered:
Bonjour Lisette, les diagrammes sont corrects ainsi, les deux devants ne sont pas identiques, comme vous pourrez le constater sur la photo, les nopes ne sont pas au même niveau sur la 1ère grande torsade (A.2 et A.3) de part et d'autre de A.1 (ou encore sur le zoom, dernière photo). Bon tricot!
29.11.2021 - 08:43Lisette wrote:
Merci votre explication est très claire.
24.11.2021 - 20:56Lisette wrote:
Y a t il erreur, lorsque je débute le patron grandeur xl le patron débute par 5 m bordure 2 m envers A1 (4 M) = 11 m la fin du rang se termine par 4 m enversA1 ,(4 m) 2 m envers 5 m de bordure cela donne 15 mailles il n y a donc pas symétrie lorsque je débute sur l envers du tricot qu est ce ce que ne comprends pas. je devrais avoir le même nombre de mailles à gauche et à droite…. merci
23.11.2021 - 17:58DROPS Design answered:
Bonjour Lisette, j'ai peur de ne pas bien comprendre votre question: dans toutes les tailles, vous avez 5 m de bordure devant, 2 m env, A.1 et 4 m env = 15 m pour le devant droit et 4 m env, A.1, 2 m env, 5 m de bordure devant = 15 m pour le devant gauche en fin de rang, vous avez bien ces mêmes 15 mailles. Aurais-je mal compris?
24.11.2021 - 07:32Lisa wrote:
Gehört auch definitiv zu meinen Favoriten ❤🧡💛
15.09.2021 - 18:15