Fall Bouquet |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, útsaumuðum blómum og frönskum hnútum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-48 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma með því að slá einu sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Síðan er fram- og bakstykki og ermar prjónað í hring á hringprjón hvert fyrir sig, ofan frá og niður. Þegar öl peysan hefur verið prjónuð til loka, eru saumuð út blóm og franskir hnútar á framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-81-84-90-93-96 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn saman tvöfaldur og við frágang verður hann ca 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-17-18-16-17-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 94-98-102-106-110-114 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 12-13-14-15-16-17 lykkjur (= hálft bakstykki), A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= laskalína), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 3 lykkjur (= ermi), A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= laskalína), sléttar lykkjur yfir næstu 24-26-28-30-32-34 lykkjur (= framstykki), A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= laskalína), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 3 lykkjur (= ermi), prjónið A.1 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 12-13-14-15-16-17 lykkjur (= hálft bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur hringinn og í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 21-23-25-28-31-34 sinnum = 262-282-302-330-358-386 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-28-31 cm frá prjónamerki sem var sett í eftir stroffið. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-41-44-48-52-56 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 55-59-63-69-75-81 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-59-63-69-75-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-41-44-48-52-56 lykkjur í umferð. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar áfram hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-228-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 27-27-27-27-26-25 cm. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 6 cm til loka máls). Nú eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 25-25-27-29-33-37 lykkjur jafnt yfir = 189-201-219-237-261-285 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 55-59-63-69-75-81 lykkjur af þræði á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 61-65-71-77-85-93 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-5-3½-2½-1½-1 cm millibili alls 6-7-9-11-15-18 sinnum = 49-51-53-55-55-57 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist 38-37-35-34-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-6-7-8-8-9 lykkjur jafnt yfir = 54-57-60-63-63-66 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Ermin mælist ca 44-43-41-40-37-35 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. ÚTSAUMUR: Nú eru saumuð út blóm efst á berustykki. BLÓM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er með einn til þrjá franska hnúta í miðju á blómi. Síðan er saumað út með keðjusaumi í kringum allan franska hnútinn / frönsku hnútana. Blóm 1 til 6 = lítið blóm og mælist ca 4,5 til 5 cm að þvermáli. Blóm 7 = stórt blóm og mælist ca 6,5 til 7 cm að þvermáli. LÍTIÐ BLÓM: Byrjað er að sauma út einn franskan hnút – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – franski hnúturinn er saumaður út með einum þræði. Klippið þráðinn frá og festið. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður úr einfaldur keðjusaumur í kringum miðju á blómi – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu – keðjusaumurinn er saumaður út með tveimur þráðum. Það eru saumuð út ca 6 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1,5 – 2 cm langt. Klippið þræðina frá og festið. STÓRT BLÓM: Byrjað er að sauma út 3 franska hnúta – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – franski hnúturinn er saumaður út með einum þræði. Hnútarnir eru staðsettir þannig að í alls þá fylla þeir ekki meira en 2 -2,5 cm að þvermáli. Þetta er miðjan á blóminu. Klippið þráðinn og festið. Síðan er saumaður úr einfaldur keðjusaumur í kringum miðju á blómi – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu – keðjusaumurinn er saumaður út með tveimur þráðum. Það eru saumuð út ca 11 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 2 – 2,5 cm langt. Klippið þræðina frá og festið. Staðsetjið blómin þannig - málin sýna miðju á blómum: Þegar útskýrt er að blómin séu saumuð út til hægri eða til vinstri á fyrra blómi sem er saumað út, er vísað til þeirrar stefnu (hægri/vinstri) eins og sýnt er á stykkinu á myndinni. Blóm-1 er saumað út efst á vinstri öxl (eins og stykkið sem sést á myndinni) ca 4 cm frá kanti í hálsi og að franski hnúturinn sé í skiptingunni á milli ermi og A.1 – notið litinn bleikur sandur á franska hnútinn og litinn leir á blöðin. Blóm-2 er saumað út til hægri og ca 7,5 frá blómi-1 og ca 7,5 cm frá kanti í hálsi – notið litinn leir á franska hnútinn og litinn bleikur marmari á blöðin. Blóm-3 er saumað út til hægri og ca 6 cm frá blómi-2 og ca 3 cm frá kanti í hálsi – notið litinn leir á franska hnútinn og litinn bleikur marmari á blöðin. Blóm-4 er saumað út á hægri öxl (eins og stykkið sem sést á myndinni) ca 4,5 cm frá kanti í hálsi og að franski hnúturinn sé í skiptingunni á milli ermi og A.1 – notið litinn bleikur sandur á franska hnútinn og litinn bleikur marmari á blöðin. Blóm-5 er saumað út til vinstri og ca 6,5 cm frá blómi-4 og ca 4 cm frá kanti í hálsi – notið litinn bleikur marmari á franska hnútinn og litinn leir á blöðin. Blóm-6 er saumað út til vinstri og ca 9 cm frá blómi-5 og ca 12 cm frá kanti í hálsi – notið litinn leir á franska hnútinn og litinn bleikur marmari á blöðin. Blóm-7 er saumað út til vinstri og á milli blómi-5 og blómi-6 og 6,5 cm frá kanti í hálsi – notið litinn bleikur marmari á franska hnútinn og litinn leir á blöðin. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (20)
Dorte Henriksen wrote:
Der står i opskriften at halskanten skal være elastisk ….. skal der syes elastik i når ribben bøjes indad ? Vh Dorte
20.04.2024 - 19:54DROPS Design answered:
Hei Dorte. Vrangborden til de doble halskanten er i selg selv elastisk, men om man syr den for stramt fast blir ikke det bra. Når halskanten skal brettes ned på innsiden av plagget, må man sy den fast slik at sømmen ikke strammer. Fest evnt halskanten med noen få sting, slik at sømmen blir elastisk. mvh DROPS Design
22.04.2024 - 14:22Hanski wrote:
Korjaus edelliseen viestiin: ongelma oli siinä että ajatteli että hihasilmukat ovat mallineuleen väliset silmukat kun niistä puhutaan erikseen hihana. Olisi ehkä syytä ottaa kokonaan pois kaarrokkeen alun jaosta hiha -sanat pois sulkeista niin ei tule sekaannusta. Ihan turha tieto kun osa silmukoista erotellaan hihaan mallineuleen silmukoista.
15.02.2023 - 20:58Hanski wrote:
Koossa L on virhe raglanlisäysten määrässä. Pitäisi olla 30 kertaa lisäykset joka 2.kerros että tulee hihoihin se 63 silmukkaa.
15.02.2023 - 19:06Anni wrote:
Hvilket garn er blusen på billedet strikket i?
12.02.2023 - 07:16DROPS Design answered:
Hei Anni. Den er strikket med 2 tråder DROPS Kid-Silk, farge 35 sjokolade. mvh DROPS Design
13.02.2023 - 11:59Amalie wrote:
Is the sweater in the pictures 2 strands of kid silk?
09.02.2023 - 01:14Pia Husted wrote:
Kan det virkelig passe, at der kun skal bruges 5 nøgler garn til hele trøjen? Synes det er vildt hvis der kun skal bruges ialt 250 gr. til en str. XL, som jeg skal strikke. Mvh
27.10.2022 - 14:08DROPS Design answered:
Hei Pia. Jo, garnmengden stemmer, men du trenger kun 175 gram i str. XL. DROPS Brushed Alpaca Silk er et mohair lignende garn, lett og luftig og har en lang løpelengde, 25 gram er ca 140 meter. Du trenger 175gram = 7 nøster = 980 meter garn. Om du skulle ha strikket denne genseren i en mer "vanlig" garnkvalitet, som f.eks DROPS Nepal, som har en løpelengde på 75 meter på 50 gram, ville du ha trengt 650-700 gram. Ønsker du å ha litt ekstra garn, er det salg på DROPS Brushed Alpaca Silk, og noen steder selges det fra kr. 16,- til 24,-. mvh DROPS Design
31.10.2022 - 08:59Karoliina wrote:
Kumpaa lankaa kuvan neuleessa on käytetty?
02.03.2022 - 14:03Perriot wrote:
Bonjour Est ce que l’on fait une couture sur l’endroit où bien sur l’envers de l’ouvrage avec la laine brushing alpaga ? Quel est le côté le plus discret ? Merci
26.01.2022 - 15:05DROPS Design answered:
Bonjour Mme Perriot, on plie le col sur l'envers/sur l'intérieur du pull, la couture sera sur l'envers (comme le montre cette vidéo. Bonne continuation!
26.01.2022 - 17:12Julie wrote:
Jeg er nået til bærestykket i str large: 2. Omgang. I 1. Runde hvor jeg strikkede: 14R, tag ud, A1,tag ud, 30R, tag ud, A1, 3R, tag ud, A1, tag ud, 30R, tag ud, A1, tag ud, 3T, tag ud, A1, tag ud, 14 R. Hvordan er systemet det næste 50 omgange? Jeg kan se at jeg skal tage ud hver anden omgang. Men er kommer jo 8 masker mere før hver omgang og så duer det første system ikke. Hjælp.
23.01.2022 - 17:33Hella wrote:
The english description says to cast on x stitches with 1 strand Brushed Alpaca Silk OG 2 strands Kid Silk... I think that's supposed to mean "or" since I was really confused of you didn't translate that word from norwegian and I was supposed to use both Brushed Alpaca Silk and 2 strands of Kid Silk
10.11.2021 - 23:20DROPS Design answered:
Dear Hella, thanks for noticing, you are right, you work either with 1 strands Brushed Alpaca or 2 strands Kid-silk - pattern has been edited. Happy knitting!
11.11.2021 - 09:12