Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt |
|
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt |
|
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Queen Bee |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 231-16 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. LASKALÍNA: Á framstykki og bakstykki er útaukning fyrir laskalínu í mynsturteikningu. Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin á ermum þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 124-130-134-138-148-158 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Merino. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 10-4-28-24-42-60 lykkjur jafnt yfir (aukið út með uppslætti) = 134-134-162-162-190-218 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi9. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð þannig: Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju slétt, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki, 1 lykkja slétt. Framstykki: Prjónið A.1, A.2 er prjónað yfir 42-42-56-56-70-84 lykkjur, A.3. Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju slétt, setjið 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 1 lykkja slétt. Bakstykki: Prjónið A.1, A.2 er prjónað yfir 42-42-56-56-70-84 lykkjur, A.3. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið út í annarri hverri umferð alls 24-27-32-36-39-41 sinnum. Þegar A.1 og A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið þannig: Hægri ermi: Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út í annarri hverri umferð eins og áður. Framstykki: Prjónið A.4, A.2 yfir 70-70-84-84-98-112 lykkjur, A.5. Vinstri ermi: Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út í annarri hverri umferð eins og áður. Bakstykki: Prjónið A.4, A.2 yfir 70-70-84-84-98-112 lykkjur, A.5. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli. Þegar útaukning fyrir ermar hefur verið gerð til loka eru 334-346-394-410-450-486 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 99-99-113-113-127-141 lykkjur (framstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 13 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 99-99-113-113-127-141 lykkjur (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 224-224-252-252-280-308 lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-24-26-26-30-32 lykkjur jafnt yfir = 248-248-278-278-310-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af. ERMI: Setjið 68-74-84-92-98-102 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 81-87-97-105-111-115 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-9-12-14-15-15 sinnum = 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-32-30 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1 lykkju = 66-70-74-78-82-86 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 40-39-38-37-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (33)
Rene Seaman wrote:
I am making this in size small. If I am reading the pattern correctly, for the small size, the increases for the raglan sleeves will end with the end of A1 and A3. So no more increases from there until the pieces measures 8-1/4". Is this right? Really enjoying this patterns. Thanks for your help.
14.04.2024 - 06:37DROPS Design answered:
Dear Rene, yes, since you increase every 2nd row 24 times for the sleeves and you have 48 rows in A.1/A.3 then the sleeve increases are finished, so you don't need to keep increasing; work straight until the indicated measurement. Happy knitting!
14.04.2024 - 23:43Lisbeth Petersen wrote:
Jeg forstår ikke opskriften skal jeg først strikke a1 og samme pind A2 i alt 16 masker i mønster
28.03.2024 - 10:32DROPS Design answered:
Hej Lisbeth, ja du starter med A.1 gentager A.2 over det antal som står for din størrelse og slutter med A.3. Hvis vi skal forklare første omgang, så skriv hvilken størrelse du strikker :)
05.04.2024 - 11:05Kazia wrote:
Hallo, Ich stricke die Grösse M und habe die 76 M für Ärmel nach 14 cm erreicht … wie ist das möglich ? Wie soll ich weiter stricken ? Das waren genau 27 Reihen hoch um 76 m zu erreichen … (also 54 runden) und ich bin erst in 8. Reihe A4 und. A2 und A5 … würde für die Hilfe sehr dankbar :)
19.01.2024 - 22:38CORINNE wrote:
Bonjour. Il ne faut tricoter qu’une fois en hauteur A4 et A5 ? Et ensuite tricoter A2 sur toutes les mailles ? Merci pour votre aide
22.11.2023 - 16:45DROPS Design answered:
Bonjour Corinne, tricotez le point ajouré en commençant par A.4, répétez A.2 et terminez le point ajouré en tricotant A.5, autrement dit, vous tricotez ainsi jusqu'à la division pour les manches, puis, quand on tricote le dos et le devant en rond après la division, on tricote A.2 tout le tour. Bon tricot!
23.11.2023 - 08:27Tana wrote:
Ich komme mit den Diagrammen nicht zurecht. Bei A1 in der 12. Runde sind acht rechte Maschen abgebildet. Eine Runde darüber sind plötzlich insgesamt nur sieben Maschen da mit vier Umschlägen und 1x zusammen stricken. Wo ist die eine Masche verschwunden?
11.11.2023 - 23:34DROPS Design answered:
Liebe Tana, bei der 13. Runde werden die 2 letzten Maschen in A.1 mit der nächsten Masche A.2 gestrickt, und die letzte Masche A.2 wird mit den 2 ersten Maschen A.3 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
13.11.2023 - 07:58Margareta Mattsson wrote:
Kan man sticka denna modellen i enbart slätstickning? Vill gärna använda detta garnet men hittar inget mönster i vanlig slätstickning med raglanärm. MVH
26.08.2023 - 10:23DROPS Design answered:
Hej Margareta. Jag tror det är enklare att följa detta mönster och ändra raglan om du inte vill ha flätor där. Mvh DROPS Design
30.08.2023 - 12:23Janina Ahner wrote:
Wenn ich mit A1 und A3 fertig bin, schreiben Sie dass ich A4 1x, A2 über 70 M und dann A5 1x stricken soll, ich habe aber nur jeweils 74 M für das Vorder- und Rückenteil. Was habe ich falsch gemacht? Danke für eine Antwort. Janina
14.08.2023 - 17:06DROPS Design answered:
Liebe Frau Ahner, wenn A.1 bis A.3 fertig sind, haben Sie: 27 M in A.1, immer noch 42 M in A.2 und 30 M in A.3 = 99 Maschen, diese Maschen stricken Sie so: 14 M A.4, 70 M A.2 und 15 M A.5 (=14+70+15=99). Viel Spaß beim stricken!
15.08.2023 - 08:50Anne wrote:
Bonjour, je ne comprends pas comment faire le rang 13, je crois comprendre qu'il faut décaler d'une maille le diagramme mais sur le rang 12 de A1 nous avons 8 mailles, moins la maille de décalage, plus les 4 jetés, moins la diminution cela fait 10 mailles or sur le rang 14 il y a 9 mailles. J'ai vu dans un commentaire que Mme Lum avait eu le même problème mais comme elle, tout est décalé et je ne sais pas où déplacer cette maille en trop sur le reste des A2 ou A3
20.06.2023 - 18:02DROPS Design answered:
Bonjour Anne, au 13ème rang de A.1, tricotez les 7 premières mailles comme indiqué par le diagramme (en augmentant 2 m) et tricotez la dernière maille de A.1 avec la 1ère maille de A.2 (glissez cette maille à l'endroit, tricotez ensemble à l'endroit les 2 premières mailles de A.2 et passez la m glissée par-dessus les m tricotées ensemble), tricotez A.2 comme indiqué par le diagramme, quand il reste 1 maille, glissez cette maille à l'endroit, tricotez les 2 premières mailles de A.3 ensemble à l'endroit et continuez comme pour A.1/A.2. Bon tricot!
21.06.2023 - 07:48Inge-Lise wrote:
Hej\r\nJeg har lidt problemer med at forstå , i starten efter afsnitende med halskant og bærestykke . Når A.1 og A.3 er strikket færdig, fortsættes der således. Det er denne her sidste sætninger ikke helt forstår, skal jeg ikke strikke A.2?? Er der kun mønstrene A.1 og A.3 der skal strikkes medens jeg tager ud til RAGLAN ???\r\nInge-Lise
16.05.2023 - 18:34DROPS Design answered:
Hej Inge-Lise, det er A.1 og A.3 du strikker mod raglanudtagningerne og A.2 fortsættes over hele ryg & forstykke :)
17.05.2023 - 09:47Lise wrote:
Hej. Jeg vil gerne kun stikke mønster på forstykket. Kan jeg få maskeantallet til at passe på bagstykket, hvis jeg tager ud til raglan før 1. Mærke og efter 4. Mærke også?
09.03.2023 - 16:27DROPS Design answered:
Hei Lise. Du følger samme raglan økning som med mønster. Men i diagrammene A.1 og A.3 økes det noen steder mer enn det tas inn. Pass også på at det kan være forskjell på strikkefastheten / målene som strikkes etter mønster kontra bare glattstrikk og da kan forstykket og bakstykket få noe forskjellige mål. mvh DROPS Design
13.03.2023 - 10:20