Harbour Highlights |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og 2-lita klukkuprjóni. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Baby 43-19 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1 (prjónað með litnum ljós perlugrár): * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2 (prjónið með litnum sjávarþoka): * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3 (prjónið með litnum ljós perlugrár) * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina (takið eftir að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og venjulegur uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum ljós perlugrár er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann verði uppsláttur). Endurtakið umferð 2 og 3. LASKALÍNA: Aukið út um 4 lykkju í slétta lykkju með prjónamerki, í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan (= 16 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar og sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni = 5 lykkjur (4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í mynstrið, en það er enginn klukkuprjónsuppsláttur í útaukningunni, þess vegna er lykkjan sem prjóna ætti saman með uppslætti í næstu umferð, prjónuð án uppsláttar. Síðan eiga prjónamerkin alltaf að sitja í miðju af 5 lykkjum. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í 3. umferð í tveggja lita klukkuprjóni. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 4-4-4-4 (3-4) lykkjur eru á eftir lykkju með prjónamerki í, prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppsláttur sem tilheyrir lykkjum) slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 3 næstu lykkju (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjum) snúnar slétt saman (= 4 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-72-74-84 (84-84) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum sjávarþoka í DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5-5-5-7 (7-7) umferðir stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Prjónið 2 umferðir sléttprjón og aukið jafnframt út um 12-12-6-0 (0-0) lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 80-84-80-84 (84-84) lykkjur. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki sem var sett í eftir stroff. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 13-13-13-13 (13-13) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 25-27-25-27 (27-27) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 12-14-12-14 (14-14) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Byrjið með litnum ljós perlugrár og prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrsta skipti sem 3. umferð er prjónuð í tveggja lita klukkuprjóni, aukið einnig út fyrir LASKALÍNA í hverja lykkju með prjónamerki í – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í 8.-8.-8.-6.-6. (6.-6.) umferð alls 6-7-8-9 (10-11) sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 176-196-208-228 (244-260) lykkjur í umferð. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist ca 11-12-13-14 (15-16) cm frá prjónamerki við hálsmál – endið eftir 3. umferð í mynstri. Í næstu umferð (2. umferð í mynstri) skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 25-27-30-32 (35-38) lykkjur, setjið næstu 39-43-45-49 (51-53) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7 (7-7) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 49-55-59-65 (71-77) lykkjur, setjið næstu 39-43-45-49 (51-53) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7 (7-7) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 24-28-29-33 (36-39) lykkjur. Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-120-132-144 (156-168) lykkjur. Byrjið umferð í 4.-4.-5.-5. (4.-5.) lykkju sem fitjuð var upp undir ermi í annarri hlið á stykki. Prjónið tveggja lita klukkuprjón hringinn (byrjið í 3. umferð í mynstri). Munið að lykkjur sem voru fitjaðar upp undir ermi eru ekki með klukkuprjónsuppslætti í fyrstu umferð. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 1-4-5-2 (6-9) cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé 3. umferð í tveggja lita klukkuprjóni, prjónið A.1 alls 18-20-22-24 (26-28) sinnum hringinn á fram- og bakstykki. Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. tveggja lita klukkuprjón heldur áfram eins og áður, en í 12. hverri umferð, aukið út og fækkið lykkjum í mynstri eins og útskýrt er í A.1. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist ca 9-12-13-15 (17-20) cm frá skiptingu – endið eftir umferð með ör í A.1. Prjónið síðan með litnum sjávarþoka. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem allir uppslættir eru prjónaðir saman með lykkjunni sem þeir tilheyra 108-120-132-144 (156-168) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-28 (32-32) lykkjur jafnt yfir = 132-146-160-172 (188-200) lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-43-45-49 (51-53) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 2,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5-5-7-7 (7-7) lykkjum undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í 3.-3.-4.-4. (4.-4.) lykkju sem prjónuð var upp undir ermi. Prjónið tveggja lita klukkuprjón hringinn (byrjið á 3. umferð í mynstri og munið eftir að lykkjurnar sem voru prjónaðar upp mitt undir ermi eru ekki með klukkuprjónsuppslætti í fyrstu umferð). Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-3 (6-6) cm millibili alls 1-2-2-3 (3-3) sinnum = 40-40-44-44 (46-48) lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 7-10-12-13 (18-22) cm – endið eftir umferð með litnum sjávarþoka og haldið síðan áfram með litinn sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allir uppslættir eru prjónaðir slétt saman með lykkjunni sem þeir tilheyra = 40-40-44-44 (46-48) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-2-2 (4-4) lykkjur jafnt yfir = 42-42-46-46 (50-52) lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 9-12-14-15 (20-24) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Charlotte Moltke wrote:
Når der står at der skal strikkes 14 cmfra mærket ved halsen, er det så inklusiv ribkanten eller kun fra den patentstrikkede del?``
05.02.2024 - 17:08DROPS Design answered:
Hei Charlotte. Bærestykket skal måles fra merket som ble satt etter vrangborden. Altså fra merket ved halsen. mvh DROPS Design
12.02.2024 - 14:16Julia wrote:
Stricke mit anfangs 72 M, nach Zunahme 84. Am Ende nach allen Zunahmen(Passe) sollen es 196 M sein. Bei mir sind es viel mehr- Zweifarbiges Vollpatent 1. R: da habe ich ja schon mit den ganzen Umschlägen so viele M. zugenommen. Aber bei 7 Runden mit je 16 M Zunahme (112) müssten es ja anfangs 84 M bleiben (112+84=196). Wo denke ich falsch? Oder zählt man die Umschläge auf der Nadel nicht mit? Hoffe, mein Problem ist verständlich. Danke für Hilfe! Julia
13.10.2023 - 19:00DROPS Design answered:
Liebe Julia, es wird jeweils 16 Maschen zugenommen: 4 Maschen bei jeder Markierer; und insgesamt 7 Mal in diese Grösse, so: 7 x 16 sind 112 Zunahmen insgesamt + 84 = 196 Maschen. Beachten Sie nur daß die Umschläge vom Patentmuster nicht als Maschen gezählt werden. Viel Spaß beim stricken!
16.10.2023 - 08:43Isa Jälkensjö wrote:
Jag stickar storleken med 72 maskor. Och hur jag än räknar så får jag inte 14 maskor kvar på stickan när jag satt i för raglanen.
16.05.2022 - 13:54DROPS Design answered:
Hei Isa. Om du strikker str. 1/3 legger du opp 72 masker, strikker vrangbord og deretter øker du med 12 masker = 84 masker før du skal sette de 4 merkene i arbeidet. Tell 13 masker, sett 1 merke i NESTE maske, tell 13 masker, sett 1 merke i NESTE maske, tell 27 masker, sett 1 merke i NESTE maske, tell 13 masker, sett 1 merke i NESTE maske. Det er 14 masker igjen på pinnen etter siste merke. Altså 13+1+13+1+27+1+13+1+14= 84 masker. mvh DROPS Design
16.05.2022 - 14:34Stephanie Lynn Crone wrote:
Nevermind, I found the fourth marker. However, the markers don't add up. The pattern says 13,pm, 13, pm,27, pm, 13, pm with 14 left. That comes to 80 stitches, which now leaves me with 4 extra stitches with no place to go.
18.04.2022 - 20:41DROPS Design answered:
Dear Stephanie, you insert the marker in the stitch and not between stitches, so the 4 remaining stitches are the ones with stitch markers. Happy knitting!
18.04.2022 - 22:46Stephanie Lynn Crone wrote:
Under "Yoke" the directions state that we will be inserting 4 markers but only the 3 are listed, where does the 4th one go?
18.04.2022 - 20:22DROPS Design answered:
Dear Stephanie, as stated under YOKE, you insert 4 markers: "Count 13-13-13-13 (13-13) stitches, insert marker in the next stitch, count 13 stitches, insert marker in the next stitch, count 25-27-25-27 (27-27) stitches, insert marker in the next stitch, count 13 stitches, insert marker in the next stitch".
18.04.2022 - 20:31