DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör |
638.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör 638.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt) | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= sýnir 1 mynstureiningu á hæðina og hvernig götin eru staðsett yfir hvert annað | |
= byrjið hér í þinni stærð |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
New Land |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 119-119-119-147-147-156 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 17-17-17-21-21-26 lykkjur jafnt yfir = 102-102-102-126-126-130 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið næstu umferð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (uppábrot). Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 3 cm frá uppábroti. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14-14-14-18-18-18 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, A.2 (byrjið við ör fyrir þína stærð), A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14-14-14-18-18-18 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, A.2, A.1. Nú hefur verið aukið út fyrir laskalínu 1 sinni og það eru 110-110-110-134-134-138 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu alveg eins í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. á ermum er aukið út fyrir lasklaínu með 1 uppslætti hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni (uppslátturinn á ermum er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo ekki myndist gat). Á framstykki/bakstykki er aukið út fyrir laskalínu með uppslætti í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.2. ATH: Prjónamerkin í byrjun á umferð eiga alltaf að sitja á undan uppslætti í byrjun á umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hefur verið aukið út fyrir laskalínu alls 19-19-19-15-15-14 sinnum á hæðina og það eru 254-254-254-246-246-242 lykkjur í umferð. Haldið áfram svona með mynstur (mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.2), útaukning fyrir laskalínu heldur áfram þannig: STÆRÐ S - M - L - XL: Ermar, framstykki og bakstykki: aukið út alveg eins og áður í annarri hverri umferð 8-8-16-16 sinnum til viðbótar (alls 27-27-35-31 sinnum á hæðina). STÆRÐ XXL - XXXL: Ermar: aukið út alveg eins og áður í annarri hverri umferð 13-14 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 6-9 sinnum (alls 34-37 sinnum á hæðina). Framstykki/bakstykki: aukið út alveg eins og áður í annarri hverri umferð 24-32 sinnum til viðbótar (alls 39-46 sinnum á hæðina). Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 318-318-382-374-418-462 lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur þannig: 68-68-84-80-86-92 lykkjur sléttprjón fyrir ermi, A.1, A.3A, prjónið A.3B alls 5-5-7-7-9-11 sinnum, A.3C, A.1, 68-68-84-80-86-92 lykkjur, sléttprjón fyrir ermi, A.1, A.3A, prjónið A.3B alls 5-5-7-7-9-11 sinnum, A.3C, A.1. Þegar stykkið mælist ca 20-22-25-25-28-33 cm frá prjónamerki við hálsmál (útaukning fyrir laskalínu á nú að vera lokið og þá verður að hafa verið prjónuð minnst 1 umferð í mynstri eins og útskýrt er að ofan), skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 68-68-84-80-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-6-12-12-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-91-107-107-123-139 lykkjur eins og áður, setjið næstu 68-68-84-80-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-6-12-12-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 91-91-107-107-123-139 lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Stykkið er nú mælt héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-202-226-238-270-298 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð þegar auka á út. Prjónið sléttprjón yfir 2-5-3-6-6-5 lykkjur á undan fyrsta prjónamerki. Umferðin byrjar núna hér. Haldið áfram hringinn eins og áður – þær 4-10-6-12-12-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-6-6-6-6-5 cm millibili alls 3 sinnum = 202-214-238-250-282-310 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 23-23-22-23-22-19 cm frá skiptingu, en stillið af að prjónaðar hafa verið minnst 5 umferðir sléttprjón eftir umferð með gati. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 50-54-60-62-70-78 lykkjur jafnt yfir = 252-268-298-312-352-388 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 68-68-84-80-86-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-10-6-12-12-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 72-78-90-92-98-102 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-10-6-12-12-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það er notað þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2-1½-1 cm millibili alls 4-4-5-5-5-4 sinnum = 64-70-80-82-88-94 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 15-14-12-11-9-5 cm frá skiptingu. Nú á að prjóna tvöfaldan kant alveg eins og í hálsmáli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-16-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 54-58-64-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* í kringum ermi (uppábrot). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 3 cm frá uppábroti. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og fellið aðeins laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Brjótið inn kantinn neðst á ermum að röngu og saumið niður alveg eins. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (11)
Ester wrote:
Rectifico. Teniendo en cuenta que A3b se multiplica por 5 son 8x5=40. Asi la suma es 8+9+40= 59. Puntos. Me siguen sobrando 2
17.04.2024 - 08:38DROPS Design answered:
Hola Ester, al final de A.2, más las repeticiones posteriores, deberías tener 59 puntos en A.2. Después, cuando trabajas A.3 ten en cuenta que A.3A son 10 pts. A.3A (= 10) + 5 repeticiones de A.3b (=8pts) + A.3C (=9pts) son =10+40+9 = 59 pts.
21.04.2024 - 23:39Ester wrote:
No me salen las cuentas en el raglan. Si A2 son 19 repeticiones, son 38 puntos aumentados. 5 puntos de inicio más 38 son 43, luego debo aumentar 8 veces más que son 16. Total 59 puntos. En el grafico A3a + A3b +A3c son 17 puntos, me sobran dos. Que hice mal?
16.04.2024 - 23:37DROPS Design answered:
Hola Ester, mira la respuesta arriba.
21.04.2024 - 23:39Charlotte Lønskov Jensen wrote:
Hej jeg kan ikke få strikkefastheden til at passe. På pind 4 får jeg ca 15-16 masker på 10 cmi bredden og har nu skiftet til pind 2 hvor jeg får 18 masker. Der er et stykke vej til 21 masker som angivet ?? Strikker med Drops Belle som anbefalet
03.04.2024 - 17:47DROPS Design answered:
Hei Charlotte. Måler du strikkefastheten din i glattstrikk eller etter mønstret som er på plagget? Den skal måles i glattstrikk. mvh DROPS Design
08.04.2024 - 13:18Marja wrote:
Hupsista. Olihan tuossa ohjeessa lisäykset selkeästi sanottu, kun vaan maltoin rauhassa lukea. Eli ei tarvi vastata. Belle on ihana lanka neuloa ja malli on kaunis, tosin myös haastava, mutta juuri sen vuoksi myös kiva. Kiitos
20.10.2023 - 16:54Marja wrote:
Hei! Tuleeko sileän neuleen molemmin puolin langankierrot myös joka toinen kerros kuten A2 mallineuleessa?
18.10.2023 - 17:00DROPS Design answered:
Hei! Kyllä, hihojen sileän neuleen molemmin puolin tehdään langankierto joka 2.kerros. Myöhemmin hihojen lisäykset tehdään joka 4.kerros.
24.10.2023 - 18:10Marian wrote:
Hvor skal mærker sættes til raglanærmer på denne opskrift
20.06.2022 - 16:22DROPS Design answered:
Hej Marian, der er ikke mærker i denne opskrift i og med at du tager ud på hver side af de glatstrikkede masker på ærmerne og på hver side af A.2 på for og bagstykke (ialt 8 udtagninger) God fornøjelse!
21.06.2022 - 14:42MLeiter wrote:
Très joli modèle que j'ai aimé tricoter. Pour ma part, les augmentations au bas du dos-devant avant les côtes sont trop importantes et donnent une forme évasée que je n'aime pas. Je vais défaire afin de les supprimer ou du moins réduire.
11.06.2022 - 14:00Madeline Johnson wrote:
It looks like in the picture the neck is single knit rib for 3 cm. Started this pattern and the stockenette stitch for neck is not looking right. Any idea if I am in the right track? Thank you for all these beautiful patterns to knit.
05.06.2022 - 00:23DROPS Design answered:
Dear Madeline, the neck is worked in stockinette stitch, not in rib. You work an inner part, a folding edge and an outer part. So, until you fold and sew the neck (as stated in Assembly) it will not look the same as in the picture. Also make sure your gauge is correct while you work, so that the neck is not too tight or too loose. Happy knitting!
05.06.2022 - 20:41Pilar Garcia-Barrado wrote:
Zou u kunnen zeggen wanneer deze beschikbaar is?
04.03.2022 - 11:26Jennifer Chung wrote:
Country Lanes
18.01.2022 - 22:00