Open Windows |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með axlarsæti og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-43 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 8. og 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í. Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR: Í fyrstu stuttu umferðum er einungis aukið út á annarri öxlinni, þar sem bara er prjónað fram hjá annarri lykkjunni með prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri í umferð). Síðan er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð, alveg þangað til síðasta umferðin er prjónuð frá röngu til baka að miðju að aftan þar sem aukið er út á hinni öxlinni (= 2 lykkjur fleiri í umferð). ÚRTAKA-1 (á við um framstykki og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjón. Berustykkið er fyrst prjónað fram og til baka með stuttum umferðum þar til hálsmálið hefur verið prjónað til loka. Síðan er prjónað í hring þar til útaukning fyrir axlarsæti er lokið. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig, þar til útaukning fyrir handveg er lokið. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna til loka. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru saumaðar í eins og útskýrt er í uppskrift. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 136-144-144-152-152-160 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Belle eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, snúið stykkinu og prjónið síðan hringinn þannig: Prjónið A.1 (= 17-18-18-19-19-20 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 102-108-108-114-114-120 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 4 cm þar sem það er styst (þar sem bogarnir í kanti snúa niður í stroffi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-10-8-8-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 114-118-118-122-122-126 lykkjur. BERUSTYKKI: Skiptið nú yfir á hringprjón 4. Nú er settir 2 merkiþræðir og 2 prjónamerki í stykkið. Merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja og prjónamerkin eru set í lykkju, þannig: Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði, hoppið yfir næstu 28-29-29-30-30-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= axlalykkja), hoppið yfir næstu 28-29-29-30-30-31 lykkjur, setjið einn merkiþráð hér (= mitt að framan), hoppið yfir næstu 28-29-29-30-30-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= axlalykkja), nú eru 28-29-29-30-30-31 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka þannig að hálsmálið myndast, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir axlarsæti – sjá STUTTAR UMFERÐIR og ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI áður en þú prjónar áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! STUTTAR UMFERÐIR: Byrjið við prjónamerki mitt að aftan og prjónið stuttar umferðir í sléttprjóni, fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 og 2: Prjónið þar til eftir eru 27-28-28-29-29-30 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 og 4: Prjónið þar til eftir eru 26-27-27-28-28-29 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 og 6: Prjónið þar til eftir eru 24-25-25-26-26-27 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 7 og 8: Prjónið þar til eftir eru 22-23-23-24-24-25 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 9 og 10: Prjónið þar til eftir eru 20-21-21-22-22-23 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 11 og 12: Prjónið þar til eftir eru 18-19-19-20-20-21 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 13 og 14: Prjónið þar til eftir eru 14-15-15-16-16-17 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 og 4: Prjónið þar til eftir eru 10-11-11-12-12-13 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 17: Prjónið til baka mitt að framan. Nú er prjónað áfram hringinn. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón, prjónið fyrst fram og til baka þar til stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka, prjónið síðan áfram hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig: Aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið er út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl (= 1 lykkja) verður áfram eins. Í næstu umferð frá röngu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki í á hvorri öxl – munið eftir ÚTAUKNING-2. Það er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl (= 1 lykkja) verður áfram eins. Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og það er aukið út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar falli fallega – sjá LEIÐBEININGAR! Aukið svona út í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) þar til stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka = 16 lykkjur fleiri hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í. Nú er stykkið prjónað í hring og útaukning fyrir axlarsæti heldur áfram í hverri umferð 12-12-15-15-18-18 sinnum til viðbótar (= alls 28-28-31-31-34-34 lykkjur fleiri hvoru megin við lykkju með prjónamerki í á hvorri öxl) = 226-230-242-246-258-262 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 10-10-11-11-12-12 cm frá prjónamerki við hálsmál. Næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið fyrstu 56-57-60-61-64-65 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= hálft bakstykki), fellið af lykkju frá miðju á öxl, prjónið næstu 112-114-120-122-128-130 lykkjur (= framstykki), fellið af lykkju mitt á öxl, prjónið síðustu 56-57-60-61-64-65 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= hálft bakstykki). Klippið þráðinn. BAKSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, prjónið 0-1-2-0-0-1 lykkjur sléttprjón, A.2 þar til eftir eru 3-4-9-1-7-8 lykkjur, prjónið fyrstu 0-0-6-0-6-6 lykkjur í A.2, 2-3-2-0-0-1 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Síðan eru prjónaðir eins margir hnútar í stykkinu og pláss er fyrir að handvegi – þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar prjónaðir hafa verið 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-7-6-5-5-4 sinnum = 96-100-108-112-118-122 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-17-18-19-18-17 cm. Fitjið nú upp lykkjur fyrir í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 1-3-3-3-5-9 sinnum = 98-106-114-118-128-140 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2 (með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og ef ekki er pláss fyrir hnút að handvegi, prjónið lykkjur í sléttprjóni). Stykkið á nú að mælast 18-19-20-21-22-23 cm frá prjónamerki. Klippið þráðinn og geymið stykkið og prjónið bakstykkið. BAKSTYKKI: Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 4 = 112-114-120-122-128-130 lykkjur. Prjónið alveg eins og á framstykki. Þegar útaukning fyrir handveg hefur verið gerð til loka eru 98-106-114-118-128-140 lykkjur í umferð. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur á bakstykki, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfri allar lykkjur á framstykki, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn = 204-224-240-260-284-312 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Færið merkiþráðinn hingað – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. Setjið prjónamerkin mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 2-3-3-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og prjónið sléttprjón yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (þ.e.a.s. mynstrið gengur ekki jafnt upp alla leið umferðina hringinn). Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm = 196-216-232-252-276-304 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 10-11-11-12-12-13 cm frá prjónamerki. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm með stroffi til loka máls) – stillið af að prjónaða hafa verið minnst 2 umferðir í sléttprjóni á eftir hnúti í mynstri. Til að koma í veg fyrir að stroffið dragi stykkið saman, aukið nú út um 32-36-38-42-48-50 lykkjur jafnt yfir = 228-252-270-294-324-354 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Nú er stroffið prjónað (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4½ cm. Prjónið nú frá ör í mynsturteikningu A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist alls 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl (mælt innst við kant í hálsmáli) og niður. ERMI: Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Fitjið upp 62-62-64-60-54-50 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle (það eru fitjaðar upp færri lykkjur í stærri stærðum vegna fleiri útaukninga hvoru megin við ermakúpu). Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt eru fitjaðar upp lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-1-1-1-1-1 lykkjur 1-4-4-5-8-11 sinnum, síðan í næstu umferð frá réttu, fitjið upp 4-6-6-12-14-16 lykkjur = 72-76-78-82-84-88 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 4-6-6-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-2. Í stærð M, L og XXXL, er úrtakan endurtekin þegar stykkið mælist 10 cm = 70-72-74-80-82-84 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 27-25-25-23-21-19 cm. Setjið eitt nýtt prjónamerki mitt á ermi þannig að það verða 35-36-37-40-41-42 lykkjur á milli 2 prjónamerkja. Prjónið sléttprjón hringinn, jafnframt er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 7-7-7-8-8-8 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist ca 37-35-35-34-32-30 cm – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm með stroffi til loka máls og það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54-54-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4½ cm. Prjónið nú frá umferð með ör í A.2 umferðina hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið stroff þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 48 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkant á ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Chris wrote:
Je ne comprends pas les rangs raccourcis. On commence au milieu du dos , on va jusqu'à 29m avant le marqueur et on trouve. On ne fait donc qu'une épaule, un demi devant et un demi dos. Quand fait'on l'autre côté ? C'est pas bien expliqué, pas très compréhensible Merci de m'éclairer
03.04.2024 - 22:27DROPS Design answered:
Bonjour Chris, au 1er rang vous tricotez juste la 1ère épaule - il reste 29 m avant le marqueur du milieu devant, tournez et tricotez le tour suivant sur l'envers jusqu'à ce qu'il reste 29 m avant le marqueur du milieu devant et tournez (vous avez laissé 29 m non tricotées de chaque côté du marqueur du milieu devant), et vous avez tricoté les rangs 1 et 2. Tricotez maintenant les rangs 3 et 4 de la même façon jusqu'à ce qu'il reste cette fois 26 m de chaque côté du marqueur du milieu devant (sur l'endroit et sur l'envers) et continuez ainsi en suivant le nombre de mailles indiqué. Terminez par 1 rang sur l'endroit jusqu'au milieu dos et continuez en rond. Bon tricot!
04.04.2024 - 08:30Sylviane Ruet wrote:
Comment faire les augmentations pour les manches marteau en même temps que les rangs raccourcis puisqu'on s'arrête avant le marqueur de l'épaule ? Une vidéo serait bienvenue... Merci
16.02.2024 - 19:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme Ruet, tricotez les rangs raccourcis comme indiqué (le nombre de mailles indiqué pour chaque rang est celui qu'il doit rester non tricoté à la fin de chaque rang pour chacun d'eux), et, en même temps, augmentez avant/après la maille avec un marqueur (de chaque côté de la maille de l'épaule) tous les rangs (= sur l'endroit et sur l'envers), cf AUGMENTATIONS-2; lorsque vous aurez tricoté les 17 rangs raccourcis, vous aurez augmenté 16 fois (8 fois pour l'épaule droite et 8 fois pour l'épaule gauche), coupez le fil et reprenez au milieu dos pour continuer en rond. Bon tricot!
19.02.2024 - 07:41Arnault Jocelyne wrote:
Je ne comprends pas comment commencer les rangs raccourcis en aller retour et EN MEME TEMPS les augmentations. Il y aura un "trou" milieu dos ? La vidéo pour les augmentations est parfaite, mais je ne comprends pas les aller retours.... Merci si vous avez des explications supplémentaires ou une vidéo. Cordialement
12.05.2023 - 09:57DROPS Design answered:
Bonjour Mme Arnault, les rangs raccourcis se tricotent en allers et retours car ce sont des rangs (autrement dit, on ne tricote pas en rond) tricotés alternativement sur l'endroit et sur l'envers: rang 1: sur l'endroit, rang 2 sur l'envers, rang 3 sur l'endroit et rang 4 sur l'envers et ainsi de suite. Vous tricoterez ensuite de nouveau en rond sur toutes les mailles quand le rang 17 est terminé. Bon tricot!
12.05.2023 - 11:24Cornelia wrote:
Ich verstehe leider A1 nicht. Wann sollen denn 6 Maschen zusammengestrickt werden?
27.03.2023 - 20:00DROPS Design answered:
Liebe Cornelia, bei der 1. Reihe in A.1 wird man so stricken: *1 M re, 6 M re zusammen, 1 M re*, und von *-* insgesamt 17 bis 20 Mal (siehe Größe) bzw die ganze Runde wiederholen. Bei der 2. Runde strickt man dann: *1 Umschlag, 1 M li, 1 Umschlag, 1 M li, 1 Umschlag, 1 M li*, von *-* wiederholen = es sind jetzt 6 M in jedem A.1 und insgesamt 102 bis 120 M übrig. Die letzten Reihen A.1 (1 M re, 1 M links) stricken. dieses Video zeigt, wie man das Diagram strickt. Viel Spaß beim stricken!
28.03.2023 - 09:58Nurse_Jitka wrote:
Nějak nestíhám...70 ok rukáv...ubereme 7x2 oka...máme 42ok? Asi OPRAVDU jsem blondýna a neumím počítat,ale ať se snažím jak se snažím,pod 56 ok se nedostanu...
12.01.2023 - 19:49DROPS Design answered:
Dobrý den, Jitko, blondýnka možná jste, ale blondýna určitě ne :-) U tohoto modelu je na rukávu fígl, který bohužel není z textu zcela zřejmý (opravíme!): na rukávu jsou 2 značky a ujímat je třeba 1 oko na obou stranách OBOU značek. Tedy v 1 kruh.řadě ujmeme 4 oka, nikoli (jak je obvyklé) 2. Pak už počty sedí. Díky za podnět k návodu a přeji mnoho zdaru při pletení, Hana
13.01.2023 - 12:18Myriam De Meyer wrote:
Bij beschrijving van de mouwen staat er vanaf de boorsteek: met een pijl in A.2 . Moet dit niet A.3 zijn?
06.09.2022 - 22:10Josephine wrote:
Popcorn
18.01.2022 - 19:22Dianne wrote:
Baubles
17.01.2022 - 22:34