DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-712

DROPS Design: Mynstur nr PO-027
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/39 - 40/42
Lengd fótar: 22 - 24 - 26 cm
Hæð á sokk: ca 26 - 28 - 30 cm

GARN:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
250-250-250 g litur nr 06, ljós beige
Og einnig:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100-100-100 g litur nr 47, ljós beige

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 12.

PRJÓNFESTA:
8 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með garðaprjóni með DROPS Polaris = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR:
Eftir hverja umferð þegar snúið er mitt í umferð er 1. Lykkju lyft af prjóni. Herðið á þræði og prjónið áfram eins og áður. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í snúningum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á tá og saumað saman í lokin.

SOKKUR:
Fitjið upp 20-21-22 lykkjur á prjón 12 með DROPS Polaris.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, síðan 8 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: * 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-*, endið með 6-7-8 lykkjur slétt = 18-19-20 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.

Skiptið yfir í DROPS Snow (haldið áfram með prjón 12).
Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri, svo ekki myndist gat) = 35-37-39 lykkjur.
Prjónið 5 umferðir sléttprjón fram og til baka (með byrjun frá röngu).

Skiptið yfir í DROPS Polaris.
Nú er næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 umferð slétt, síðan eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 18-19-20 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: * 8-8-9 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 8-9-9 lykkjur slétt = 17-18-19 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.

Skiptið yfir í DROPS Snow.
Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt = 33-35-37 lykkjur.
Prjónið 5 umferðir sléttprjón fram og til baka (með byrjun frá röngu).

Skiptið yfir í DROPS Polaris.
Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið síðan allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 17-18-19 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið síðan stuttar umferðir með útaukningu fyrir hæl þannig (haldið áfram með DROPS Polaris og garðaprjón að loka máli) – lesið LEIÐBEININGAR!: * Prjónið 6 lykkjur, snúið og prjónið 5 lykkjur til baka, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju á prjóni. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur. Prjónið 6 lykkjur, snúið og prjónið 5 lykkjur til baka, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju á prjóni. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* alls 4-5-6 sinnum = 25-28-31 lykkja.
Setjið eitt merki í ystu lykkju í annarri hlið á eftir síðustu útaukningu, stykkið er nú mælt héðan.
Prjónið síðan stuttar umferðir með úrtöku þannig: * Prjónið saman fyrstu 2 lykkjur á prjóni, 5 lykkjur, snúið og prjónið 6 lykkjur til baka. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur. Prjónið saman fyrstu 2 lykkjur á prjóni, 5 lykkjur, snúið og prjónið 6 lykkjur til baka. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7 sinnum = 15-16-17 lykkjur. Prjónið fram og til baka án úrtöku þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá merki (= 4-5-6 cm eftir að loka máli).
Nú er lykkjum fækkað fyrir tá þannig: Prjónið fram og til baka yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hverri umferð frá réttu alls 3-4-5 sinnum = 12 lykkjur eftir í öllum stærðum.
Prjónið saman allar lykkjur 2 og 2 = 6 lykkjur eftir í öllum stærðum.
Klippið þráðinn og þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Saumið sauminn mitt undir fæti og upp að uppfitjunarkanti, saumið kant í kant í ystu lykkjubogana, svo saumurinn verði ekki þykkur.
Prjóninn annan sokk á sama hátt.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-712

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Hilde wrote:

Kan dit ook met rondbreinaalden in het rond gebreid worden?

16.10.2023 - 21:12

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Waarschijnlijk kan dat wel. Je moet dan even nadenken hoe je de verkorte toeren voor de hiel en de minderingen voor de tenen maakt.

18.10.2023 - 18:52

country flag Polly wrote:

Hi! Please could I get some help, during the turning of the heel you write: "K6, turn and K5 on return row, K2 in last st on row." What does "K2 in last st on row" mean? I have tried searching it but not come up with many answers. Thanks for your help!

14.12.2018 - 10:19

DROPS Design answered:

Hi Polly. You are meant to increase 1 stitch in each side by working 2 stitches in the same stitch like so: you work 1 stitch in the front loop and before slipping the stitch off the left needle you work 1 stitch in the back loop as well. Attached is a video demonstrating how to do this: . Happy knitting

14.12.2018 - 11:51

Claudia wrote:

Hoi kan dit patroon ook op een andere maat naald gebreid worden en hoeveel steken heb ik dan nodig

09.01.2017 - 09:57

DROPS Design answered:

Hoi Claudia. Als je een andere draad (dunnere) wilt breien, dan moet je het patroon opnieuw berekenen. Ik kan je hiermee helaas niet helpen.

09.01.2017 - 14:42

country flag Marie wrote:

Hallo, Könnte man diese Socken auch mit deinem nadelspiel stricken? Gäbe es dazu auch eine Anleitung? Beste Grüße, Marie

18.04.2015 - 10:11

DROPS Design answered:

Da hier verkürzte R gestrickt werden, bietet es sich nicht an, die Socken in Runden zu stricken. Falls Sie ungern zusammennähen, schauen Sie sich doch einfach mal ein Video dazu an - es ist weniger schlimm, als man denkt. ;-) Im Kopf neben dem Foto finden Sie unter "Videos" Videos zum Thema Fertigstellen.

23.04.2015 - 23:56

country flag Marie wrote:

Hallo, Könnte man diese Socken auch mit deinem nadelspiel stricken? Gäbe es dazu auch eine Anleitung? Beste Grüße, Marie

17.04.2015 - 15:52

DROPS Design answered:

Antwort siehe oben! :-)

23.04.2015 - 23:56

country flag Laetitia wrote:

Bonjour, pour les diminutions a faire 4 fois, a quel moment du rang doit-on les faire sur le rang ? Je vous remercie

22.08.2014 - 18:26

DROPS Design answered:

Bonjour Laetitia, cette diminution d'1 m tous les 2 rangs peut se faire n'importe où sur le rang, vous pouvez la faire au milieu ou alternativement en début/en fin de rang. Bon tricot!

25.08.2014 - 09:59

country flag Laetitia wrote:

Bonjour, pour ces diminutions :" diminuer 1 m 3-4-5 fois au total tous les rangs sur l'endroit = il reste 12 m pour toutes les tailles", laquelle doit-on faire ? Dans ce cas, on diminue bien un rang sur deux pour le faire sur l'endroit du tricot ? Merci

17.08.2014 - 15:30

DROPS Design answered:

Bonjour Laetitia, en taille 35/37, on diminue 3 fois, en taille 38/39 4 fois et en taille 40/42 5 fois. Tous les rangs sur l'endroit signifie effectivement tous les 2 rangs (1 rang sur l'end avec diminution, 1 rang sur l'envers sans diminution). Bon tricot!

18.08.2014 - 12:49

country flag Laetitia wrote:

Bonjour, pouvez m'expliquer l'astuce car je ne vois pas comment faire : "Quand on tourne l'ouvrage en cours de rang, glisser la 1ère m à l'end, serrer le fil et continuer comme avant – ceci évite d'avoir un trou à la transition. " ? je vous remercie

15.08.2014 - 14:36

country flag Laetitia wrote:

Bonjour, merci pour votre vidéo mais j'ai toujours quelques difficultés à comprendre cette partie. Sur le rang, doit-on faire, 1 maille, 1 jeté classique (maille endroit)et dans ce cas j'augmente le nombre de maille. Au rang suivant, chaque jeté est tricoté torse ?

14.08.2014 - 12:32

DROPS Design answered:

Bonjour Laëtitia, c'est tout à fait ça, on augmente le nbe de mailles avec les jetés, et on les tricote torse au rang suivant pour éviter les trous. Bon tricot!

14.08.2014 - 13:08

country flag Laetitia wrote:

Bonjour, Dans ce paragraphe : Continuer avec le fil Eskimo (toujours avec les aiguilles 12) et tricoter le rang suivant sur l'end ainsi : *1 m end, 1 jeté*, répéter de *-* etc J'ai tout de suite commencé les jetés sur le premier rang dès le changement de fil. est-ce correct ? D'autre part, j'ai 19 mailles, hors il me semble que je devrais en avoir davantage selon les explications : = 35-37-39 m ? dans ce cas, les jetés permettent-ils de faire des augmentations ? Je vous remercie

13.08.2014 - 12:52

DROPS Design answered:

Bonjour Laetitia, au 1er rang Eskimo on tricote tout le rang "1 m end, 1 jeté" (les jetés = augmentations que l'on tricote torse au rang suivant, cf vidéo ci-dessous). Si vous aviez 19 m avant ce rang, vous augmentez de 18 m (=18 jetés) et avez 37 m à la fin du rang. Bon tricot!

13.08.2014 - 15:10