Beren |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Fabel eða DROPS Flora með sjalkraga. Stærð S-XXXL.
DROPS Extra 0-897 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. STUTTAR UMFERÐIR: Prjónaðar eru stuttar umferðir í 5. hverjum cm á hæðina að loka máli þannig: Prjónið 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni frá réttu, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka frá röngu. Prjónið síðan garðaprjón yfir allar lykkjur eins og áður, snúið stykkinu og prjónið 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni frá röngu, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka frá réttu. Prjónið síðan frá röngu yfir allar lykkjur eins og áður. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 3 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fyrstu 4 lykkjur frá miðju að framan, fellið af næstu lykkju, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 26, 33 og 40 cm. STÆRÐ M: 27, 34 og 41 cm. STÆRÐ L: 28, 35 og 42 cm. STÆRÐ XL: 29, 36 og 43 cm. STÆRÐ XXL: 30, 37 og 44 cm. STÆRÐ XXXL: 31, 38 og 45 cm. Það á að vera eftir 1 cm áður en fellt er af í kanti að framan. ÚRTAKA (á við um úrtöku í hálsmáli mitt að framan): Lykkjum er fækkað frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á EFTIR 1 kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á UNDAN 1 kantlykkju þannig: 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA: Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 205-217-229-249-269-289 lykkjur (meðtaldar 20 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel eða DROPS Flora. Prjónið stroff þannig (1. umferð = rétta): 20 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 20 lykkjur eru eftir, prjónið þessar kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff og 20 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 5, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir miðjulykkjur – jafnframt er fækkað um 1 lykkju, endið með 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 204-216-228-248-268-288 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni með 20 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESTU 2 NÆSTU KAFLA ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm setjið 1 merki 61-64-67-72-77-82 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 82-88-94-104-114-124 lykkjur á milli merkja á bakstykki), látið merkin fylgja með í stykkinu. Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar fyrstu 19 lykkjurnar = 166-178-190-210-230-250 lykkjur eftir, setjið síðan 1 merki í byrjun og í lok umferðar (merkin sýna hvar byrja á að prjóna upp sjalkragann). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju frá hálsmáli í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð 13-14-14-15-16-16 sinnum til viðbótar (alls 14-15-15-16-17-17 sinnum) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fellið af 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki = 6 lykkjur færri í hvorri hlið) fyrir handvegi. Nú skiptist stykkið og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku fyrir hálsmáli mitt að framan – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í byrjun hverrar umferðar frá réttu þannig: 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-1-3-4 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-3-3-4 sinnum. Eftir alla úrtöku / affellingu eru 23-23-25-26-26-28 lykkjur eftir á öxl. Fellið af allar lykkjur þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. BAKSTYKKI: = 76-82-88-98-108-118 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni jafnframt er fellt af fyrir handvegi í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 72-74-78-82-84-88 lykkjur. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af miðju 22-24-24-26-28-28 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í byrjun næstu umferðar frá hálsmáli eru felldar af 2 lykkjur = 23-23-25-26-26-28 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel eða DROPS Flora. Prjónið stroff þannig (2. umferð = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3½-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-11-13-14-15-16 sinnum (alls 12-12-14-15-16-17 sinnum) = 64-66-72-76-80-84 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-51-50-49-48-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari vídd á öxlum) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-2-4-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-3-3-4 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 61 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af allar lykkjur, stykkið mælist ca 62 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. SJALKRAGI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel eða DROPS Flora þannig: Byrjið mitt að framan við merki í hægra framstykki, prjónið upp ca 60 til 70 lykkjur upp að öxl, síðan ca 40 til 50 lykkjur í kringum hnakka og ca 60 til 70 lykkjur meðfram vinstra framstykki niður að merki = ca 160 til 190 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 153-159-163-169-175-181 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 6 cm. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju brugðið í hverri af miðju 12-13-13-14-13-14 brugðnu einingunum (= aftan í hnakka) = 165-172-176-183-188-195 lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 10 cm (endið með 1 umferð frá réttu). Prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur, fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Saumið kragann niður neðst niðri í hvorri hlið við kant að framan – saumið kant í kant svo saumurinn verði ekki þykkur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. VASI: Fitjið upp 30 lykkjur með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel eða DROPS Flora á prjón 5, prjónið sléttprjón þar til vasinn mælist 16 cm. Skiptið yfir í prjón 4,5 og prjónið stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff þar til vasinn mælist 18 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. Saumið vasana niður á peysuna við kant að framan mitt að framan og niður að stroffi neðst niðri. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (29)
Lena Ask wrote:
Hei! I oppskriften står det at jeg skal hente opp masker til kragen innenfor kantmasken, mens i videoen benyttes selve kantmasken. Hvilken er riktig?
29.01.2024 - 13:47DROPS Design answered:
Hei Lena, Det som står i teksten gjelder for denne oppskriften. Videoene er for å vise teknikk og er ikke alltid det samme som står i oppskriften. God fornøyelse!
30.01.2024 - 06:48Emilie wrote:
Bonjour, pour la fin des manches, quand vous dites de rabattre 2m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 61cm, vous voulez dire 4m rabattues par rang (2m au début et 2m à la fin) ou alors 2m rabattues au début de chaque rang ? car j'ai l'impression qu'avec 4m rabattues par rang je me suis trompée... Merci d'avance pour votre aide ! :)
19.03.2023 - 15:07DROPS Design answered:
Bonjour Emilie, on veut bien dire 2 mailles de chaque côté, autrement dit rabattez 2 mailles au début du rang suivant sur l'endroit, 2 mailles au début du rang suivant sur l'envers et répétez ces 2 rangs jusqu'à ce que la manche mesure 61 cm (il faut bien avoir rabattu le même nombre de mailles de chaque côté, ajustez si besoin un peu avant ou un peu après les 61 cm). Bon tricot!
20.03.2023 - 09:37Helene wrote:
Bonjour,lorsque je monte les mailles,vous dites monté 289 est ce que je dois faire + 2×20......ou si le 2×20 est inclut dans le 289?
10.03.2023 - 00:49DROPS Design answered:
Bonjour Hélène, les 20 mailles de bordure devant sont comptées dans ces 289 mailles, vous n'avez pas à les monter en plus. Bon tricot!
10.03.2023 - 09:49Majken Bresson Pedersen wrote:
Hej Udtagningen i nakken på sjalskraven forstår jeg ikke. Hvad er et vr-parti? Skal man efter udtagning i nakken strikke 1 ret og 2 vrang? Mh Majken
21.04.2022 - 09:52DROPS Design answered:
Hej Majken, ja det stemmer du strikker 1 ret og 2 vrang i de midterste masker bag i nakken :)
22.04.2022 - 12:42Irene wrote:
Thank you for the reply. I would like to say that a "section" implies more than one or a group of something. P is a stitch, just one. I would like to suggest saying "in the middle 12(13) or(14) sts convert to K1P2". Finish row with K1P1. I hope it helps others.
24.12.2021 - 12:55Irene wrote:
I solved the yarn shortage. I desperately want to finish the collar. Can you explain how to do the increases in the back of the neck? What are "On next row from RS inc 1 P st in each of the middle 12-13-13-14-13-14 P-sections " . What are P sections?
20.12.2021 - 14:43DROPS Design answered:
Dear Irene, you are working collar in rib K1/P1, where P1 is a P-section, you will increase in the middle 12-13-13-14-13-14 sections of the collar (to make the collar fold nicely), this means you will continue with K1/P1 (seen from RS) over the first stitches before the 12-13-14 P-sections on mid back, then work K1/P2 a total of 12-13-14 times (along mid-back) and finish with K1/P1 to the bottom edge. Happy knitting!
20.12.2021 - 14:58Irene Golden wrote:
It appears I may run out of yarn to finish. I am at the point where I'll start the sleeves. I'm using Hayfield Journey in Silver Storm. What do you suggest?
26.11.2021 - 16:48DROPS Design answered:
Dear Irene, please understand that these patterns are made available to support DROPS yarns, therefore we cannot advise you about yarns from other brands. Happy Stiching!
28.11.2021 - 00:24Irene Golden wrote:
"On the beg of the next 2 rows, bind off the first 19 sts = 166-178-190-210-230-250 sts remain, then insert 1 marker at beg and end of row (marks where to start knitting up the collar). On next row from RS, dec 1 st from neck in each side - " Please explain where to bind off. Can't be the beginning of row-there is a border.
23.10.2021 - 15:32DROPS Design answered:
Dear Irene, yes, cou binding off the stitches of the button band. (If you look at the picture and the drawing, you can see that the shawlcollar if knitted separately and sewn to the band later. Happy stitching!
24.10.2021 - 03:07Irene wrote:
Please explain exactly where to bind off the 19 sts. Certainly you can't mean at the beginning of the garter sts. I placed markers 72 sts inside from edge each row.
23.10.2021 - 15:08Irene Golden wrote:
I want to substitute Drops Air with 167 yds. How many balls do I need?
10.07.2021 - 03:59DROPS Design answered:
Dear Irene, to calculate the amount of substitute yarns, use our yarn converter HERE. Happy Stitching!
11.07.2021 - 06:30