-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= sl frá réttu | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= fellið af 1 l | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Silver Mist |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Lace í garðaprjóni og gatamynstri.
DROPS 150-38 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GATAMYNSTUR: UMFERÐ 1-7: Prjónið garðaprjón UMFERÐ 8 (frá röngu): * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 9-12: Prjónið garðaprjón. Endurtakið þessar 12 umf. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 4 l (1 l í hvorri hlið, 2 l við miðju) í hverri umf frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið að l með prjónamerki (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l garðaprjón. Í næstu umf (allar umf frá röngu) prjónið GATAMYNSTUR, uppslátturinn er prjónaður slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Sjalið er prjónað frá miðju að aftan og niður. SJAL: Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace. Setjið 1 prjónamerki í 4. l (= miðjulykkja) og látið prjónamerkið fylgja með í miðjulykkju. Prjónið 1. umf (frá réttu) þannig: Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðju lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l garðaprjón = 9 l. Prjónið nú GATAMYNSTUR með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING. Haldið áfram með útaukningu þar til 229 l eru eftir á prjóni. Stykkið mælist ca 37 cm, mælt frá prjónastefnu frá uppfitjunarkanti að prjóni. Prjónið nú áfram þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.1, A.2 yfir næstu 108 l, prjónið þar til 2 l eru eftir að miðjulykkju, prjónið A.3, 1 l garðaprjón (= miðjulykkja), A.1, A.2 yfir næstu 108 l þar til 5 l eru eftir, prjónið A.3 og 3 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir A.1/A.2/A.3 þar til mynstrið hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina. Í hvert skipti sem A.1/A.2/A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina verður til pláss fyrir 2 mynstureiningar af A.2 á milli A.1 og A.3 hvoru megin við miðjulykkju – JAFNFRAMT í síðustu umf á mynstureiningu (= ranga) aukið út um 8 l jafnt yfir með því að prjóna 2 l í 1 l = 301 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l (munið eftir útaukningu eins og áður í hvorri hlið og fyrir miðju), það eru 309 lykkjur á prjóni - fellið af. BLÚNDUKANTUR: Fitjið upp 8 l á prjóna nr 3,5 með Lace. Prjónið fram og til baka eftir A.4, JAFNFRAMT er kanturinn prjónaður með sjalinu – byrjið efst á sjali og prjónið kant meðfram vinstri aflíðandi hliðinni niður að oddi/horni. Kanturinn er prjónaður á sjalið – í hverri umf frá réttu þannig: Takið upp síðustu l í ysta lykkjuboga frá sjali með hægri prjóni, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni (1. l í A.4), steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Þegar blúndukanturinn hefur verið prjónaður alla leið niður að oddi/horni á sjali er prjónað garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun hverrar umf frá röngu, haldið áfram í garðaprjóni þar til allar l hafa verið felldar af. Endurtakið meðfram hægri hlið á sjali, nema nú er prjónað eftir A.5. Kantur er prjónaður fastur á sjalið – í hverri umf frá röngu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann frá sjalinu með hægri prjóni, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni (1. l. í A.5), steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Saumið saman affellingarkantinn á A.4 og A.5 neðst niðri í oddinum. STREKKING: Leggið sjalið í volgt vatn þar til að er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til að ná enn meira vatni – sjalið kemur til með að vera aðeins rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð að fínum þríhyrningi og notið nálar til að festa það. ATH: 1 nál yst í l í hvorri hlið á sjalinu, meðfram 2 aflíðandi hliðunum er sett ein nál í miðjuna á hverri mynstureiningu og 1 nál í miðju-l (= neðst niðri í oddinum á sjalinu), dragið aðeins í við hverja nál þannig að kanturinn formist vel í smá horn. Látið sjalið þorna svona. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (40)
Annette wrote:
Liebes Drops Team, ganz herzlichen Dank, das war meine Frage.
05.08.2021 - 16:22Annette wrote:
Ich befinde mich noch ganz am Anfang, außerhalb der Diagramme. Die 1. bis 12. Reihe wird immer wiederholt. Und die 8. Reihe davon verstehe ich nicht, weil die Maschenanzahl am Ende der Reihe nicht passt.
04.08.2021 - 16:49DROPS Design answered:
Liebe Annette, bei der 8. Reihe im Lochmuster haben Sie 25 Maschen auf der Nadel, die werden so gestrickt: 3 M kraus rechts, (2 M rechts zusammen, 1 Umschlag), von (bis) wiederholen bis 4 M übrig sind, 1 M recht (so wird das Muster symmetrisch) und 3 M kraus rechts. Viel Spaß beim stricken!
05.08.2021 - 09:00Annette wrote:
Liebes Drops-Team,\r\nich meinte die 8. Rückreihe in der 2 M zusammen und ein Umschlag im Wechsel gestrickt werden soll.\r\nWenn ich mit 3 M Kraus rechts beginne, so fehlen mir am Ende der Reihe Maschen, um mit 3 M Kraus rechts zu enden. Wenn ich die Anleitung missverstanden habe und direkt am Beginn der Reihe mit 2 M zusammen, 1 U beginne, so komme ich am Ende der Reihe wieder nicht auf eine passende Maschenanzahl.
04.08.2021 - 14:23DROPS Design answered:
Liebe Annette, mit "8. Rückreihe", meinen Sie die 8. Reihe in A1-A.3, die eine Rückreihe ist (und die 8. vom Diagramme)? Bei der letzte Reihe in A.3 haben Sie 6 M, bei der letzten Reihe in jedem A.2 haben Sie 4 M und bei der letzten Reihe in A.1 haben Sie 5 Maschen (= ungerade Maschenanzahl). Bei der nächsten Reihe stricken Sie A.1 (= 1 M), dann A.2 über die 4 nächsten M (die früher A.1 waren), A.2 wie zuvor, A.2 über die ersten 4 M von dem vorrigen A.3 und die 2 nächsten M wie in A.3. Kann es Ihnen helfen?
04.08.2021 - 16:12Annette wrote:
Mit Reihe 8 komme ich nicht klar. Werden zunächst 3 M kraus rechts gestrickt, oder direkt 2 M rechts zusammen? Bei beiden Varianten kommt das Muster am Ende der Reihe nicht hin. Vielen Dank!
03.08.2021 - 20:49DROPS Design answered:
Liebe Annette, welche Reihe 8 meinen Sie hier ? im A.1-A.3? die 8. Reihe in diese Diagramme sind Rückreihen und werden Links gestrickt, die Umschläge (Lochmuster) und Zunahmen (A.1 + A.3) werden nur bei den Rückreihen gestrickt. A.1-A.3 werden so (bei Hinreihen) gestrickt; 3 M kraus rechts, A.1, A.2 wiederholen, A.3, 1 M kraus recht (Mittlere Masche), A.1, A.2 wiederholen, A.3, 3 M kraus rechts. Kann das Ihnen helfen?
04.08.2021 - 07:27Lisbeth Overgaard wrote:
Hvor er Diagrammet?
15.03.2021 - 16:54DROPS Design answered:
Hei Lisbeth, Drops har midlertidige problemer med å laste opp bilder på nettsidene, men håper at dette blir løst snart. Da finner du diagrammet på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
16.03.2021 - 08:09Maria wrote:
Dziękuję za odpowiedź. Jeśli chodzi o liczbę oczek na koniec, po pierwsze co innego wynika z odpowiedzi DROPS Desing do innych osób (pytanie - czy oczek po obu stronach oczka środkowego powinno być 154? Odpowiedź - 150), po drugie motyw brzegu ma 12 rzędów, więc 6 razy należy go dołączyć do szala.
26.09.2019 - 22:15DROPS Design answered:
Witaj Mario, wzór został aktualizowany. Po wykonaniu 2 ściągaczy francuskich jest łącznie 309 o., czyli 154 o. z każdej strony oczka środkowego. Pozdrawiamy!
30.09.2019 - 16:09Maria wrote:
Hi, I'm lost in number of stiches. After last repetition of A1-A3 there is 146 stiches on both sides of the marker, plus 4 stiches I shoul add in the last row. After I'm supposed to make 2 ridges in garter stitch, still adding stiches in the middle and on the sides. It makes 309 stiches and not 301... to attache the edge motif I need number of stiches divisible by 6...
25.09.2019 - 14:59DROPS Design answered:
Witaj Mario. Po przerobieniu 2 ściągaczy francuskich po zakończeniu schematów A.1-A.3 powinnaś mieć 309 oczek. Nie widzę żadnej informacji w opisie, że liczba oczek powinna być podzielna przez 6. Może przydało by się video jak dołączać ażurowy brzeg do szala? Pozdrawiamy
26.09.2019 - 18:02Lisa wrote:
Und in einer der vorherigen Antworten heißt es, man müsse auf jeder Seite der Mittelmasche 150 M haben, ich habe aber 154 M, denn in den letzten zwei Krausrippen sollte doch auch noch zugenommen werden, oder nicht? Vielen Dank vorab :-)
04.03.2019 - 16:47DROPS Design answered:
Liebe Lisa, ja genau Maschenanzahl stimmt, Sie wiederholen dann A.4 insegamt 25 Mal und dann bei der letzten Rapport von A.4 wenn alle Maschen vom Tuch zusammen mit der Bordüre gestrickt sind, stricken Sie kraus rechts über alle Maschen, und gleichzeitig ketten Sie 1 M am Anfang jeder Rückreihe ab bis alle Maschen der Bordüre abgekettet sind. Viel Spaß beim stricken!
05.03.2019 - 09:37Lisa wrote:
Vielen Dank für die schnelle Antwort, genau so ist es ja auch in der Anleitung beschrieben, und die verstehe ich eben nicht ;-)... Das Video startet auch leider nicht am Anfang, wo wahrscheinlich mein Denkfehler liegt. Muss ich in der ersten Reihe nur die erste Masche verbinden? An welcher Stelle verbinde ich denn die zweite Masche?
04.03.2019 - 16:46DROPS Design answered:
Liebe Lisa, am Anfang jeder Hinreihe fassen Sie 1 M vom Tuch auf, und diese Masche wird dann mit der 1. M von der Bordüre abgenommen, und so weiter stricken, dh bei der Rückreihe stricken Sie das Diagram wie gezeigt (links nach rechts) und am Anfang jeder Hinreihe 1 M vom Tuch auffassen und mit der 1. M von der Bordure abnehmen. Viel Spaß beim stricken!
05.03.2019 - 09:32Lisa wrote:
Liebes Drops-Team, das ist mein erstes Tuch und ich konnte der Anleitung bis zur Bordüre auch gut folgen, aber an dieser verzweifle ich noch :-( ... Gibt es vielleicht ein Video, in dem man den Anfang sehen kann? Ich verstehe die Anweisung nicht, wie der Rand mit der Bordüre verbunden werden soll.
04.03.2019 - 15:56DROPS Design answered:
Liebe Lisa, in diesem Video wird es gezeigt, wie Sie die Bordüre und dem Tuch zusammenstricken, dh in jeder Hinreihe fassen Sie 1 M vom Tuch auf, die erste M der linken Nadel (Bordüre/A.4) stricken, und die aufgefassene Masche über die gestrickte Maschen überziehen. Viel Spaß beim stricken!
04.03.2019 - 16:22