Little Lady Rose |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hekluð jakkapeysa fyrir börn með laskalínu og sólfjaðrakanti, hekluð ofan frá og niður úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0–4 ára
DROPS Baby 25-12 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf. Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf. UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ: * 1 umf fl (heklað frá röngu), 1 umf st (heklað frá réttu) *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umferð með áferð). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu lykkju. ÚRTAKA: Heklið 1 fl/st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (A.2 á við um útaukningu í kraga). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan. BERUSTYKKI: Heklið 83-87-91-91 (91-95) ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með litnum púður. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 82-86-90-90 (90-94) fl í umf (meðtaldar 5 kantlykkjur að við miðju að framan í hvorri hlið). Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að framan – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerki eru sett í stykkið): Hoppið yfir 15-16-17-17 (17-18) fl (= vinstra framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 14 fl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 20-22-24-24 (24-26) fl (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 14 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerkið í næstu fl (nú eru 15-16-17-17 (17-18) fl á hægra framstykki eftir síðasta prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja fl, en í hverri fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 94-98-102-102 (102-106) st í umf. Heklið síðan UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklið fram og til baka með 1 fl/st í hverja l frá fyrri umf, en í öllum umf með fl frá röngu eru heklaðar 2 ll yfir þær 2 ll frá fyrri umf í laskalínu. Í umf með st er heklað 2 st + 2 ll + 2 st í kringum báða ll-bogana). JAFNFRAMT í hverri umf frá réttu (þ.e.a.s. í hverri umf með st) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverja laskalínu (= 16 st fleiri í umf – ATH: Heklið um báða ll-bogana). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu, 3-4-5-6 (7-8) sinnum til viðbótar (= alls 4-5-6-7 (8-9) sinnum) = 158-178-198-214 (230-250) l í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umf með fl frá röngu eins og áður. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 25-28-31-33 (35-38) fl (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 34-38-42-46 (50-54) fl (= ermi), heklið 6-6-6-6 (8-8) ll, heklið 1 st í hverja af 40-46-52-56 (60-66) fl (= bakstykki), hoppið yfir næstu 34-38-42-46 (50-54) fl (= ermi), heklið 6-6-6-6 (8-8) ll og heklið 1 st í hverja og eina af síðustu 25-28-31-33 (35-38) fl (= hægra framstykki). Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1. umf frá röngu – heklið 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja af þeim 6-6-6-6 (8-8) ll undir hvorum handveg = 102-114-126-134 (146-158) fl í umf. Setjið 1 prjónamerki 28-31-34-36 (39-42) l inn frá hvorri hlið (= 46-52-58-62 (68-74) l á bakstykki). Haldið áfram fram og til baka með UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 2-2-2-3 (2-3) cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með ca 1-1½-1½-1½ (1½-1½) cm millibili, 10-10-10-10 (13-13) sinnum til viðbótar (= alls 11-11-11-11 (14-14) sinnum) = 146-158-170-178 (202-214) l. Þegar stykkið mælist ca 15-17-18-20 (22-24) cm frá handvegi – stillið af að útaukningu sé lokið, heklið nú 1 umf fl frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-2-0 (0-0) fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 148-160-172-178 (202-214) fl. Klippið frá. Skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 umf fl frá röngu með 1 fl í hverja fl frá fyrri umf. Heklið síðan sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 ll, 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf = 49-53-57-59 (67-71 ll- bogar), snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st + 2 ll + 3 st um fyrsta ll-bogann, * 1 st um næsta ll-boga, 3 st + 2 ll + 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 st í fyrstu fl frá byrjun fyrri umf = 25-27-29-30 (34-36) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st + 2 ll + 3 st um ll-bogann mitt í fyrsta st-hópinn, * 1 st í næsta st, 3 st + 2 ll + 3 st um ll-bogann mitt í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf = 25-27-29-30 (34-36) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa. Klippið frá og festið enda. ERMI: = 34-38-42-46 (50-54) l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Heklið 1. umferð frá réttu með litnum púður þannig: Heklið 3-3-3-3 (4-4) ll, heklið 1 st í hverja l og heklið 3-3—3 (4-4) ll. Snúið stykkinu, heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja af 1-1-1-1 (2-2) næstu ll, 1 fl í hvern st frá fyrri umferð og 1 fl í hverja af 3-3-3-3 (4-4) ll frá byrjun á fyrri umferð = 40-44-48-52 (58-62) l í umf. Heklið nú UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ fram og til baka eins og áður með st frá réttu og fl frá röngu. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-3-3 (3-3) cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 8-5-3-3 (2½-2½) cm millibili, 1-2-4-5 (7-8) sinnum til viðbótar (= alls 2-3-5-6 (8-9) sinnum í hvorri hlið) = 36-38-38-40 (42-44) l. Þegar ermin mælist ca 13-14-16-19 (23-26) cm frá prjónamerki – endið eftir 1 umf fl frá röngu, klippið frá. Skiptið yfir í natur. Heklið 1 umf fl frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-2-6 (4-2) fl jafnt yfir = 40-40-40-46 (46-46) fl. Heklið nú sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1 með byrjun frá réttu, alveg eins og neðst niðri á peysu. Eftir 1. umf eru 13-13-13-15 (15-15) ll-bogar í umf og eftir 2. umf eru 7-7-7-8 (8-8) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op við handveg. Saumið tölur í vinstra framstykki. Efsta tala á að vera staðsett ca 1 cm frá hálsmáli og það eiga að vera ca 5-7 cm á milli talna. Tölum er hneppt í gegnum st í mynstri með áferð. UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA: Til þess að flíkin passi betur er hekluð upphækkun aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki í l í hvert “horn” í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu. Heklið með heklunál nr 3,5 með litnum púður þannig: Byrjið á 11. l frá miðju að framan, heklið 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, heklið 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan næstu l með prjónamerki, 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l. Haldið svona áfram þar til 10 l eru eftir við miðju að framan í annarri hliðinni. Snúið við og heklið 1 fl í hverja fl, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fl saman, þ.e.a.s. heklið 1 fl í hst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 fl í st með prjónamerki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 fl í næsta hst, en nú er þræðinum brugðið yfir heklunálina og þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 fl færri). Klippið frá. KRAGI: Heklið með heklunál nr 3,5 með litnum púður þannig: Byrjið í 4. ll frá miðju að framan og heklið 1 fl í hverja fl í kringum hálsmál þar til 3 fl eru eftir í umf JAFNFRAMT sem 5. og 6. hver l eru heklaðar saman – LESIÐ ÚRTAKA = ca 57-60-64-64 (64-67) fl eftir. Passið uppá að prjónamerkin við hverja laskalínu fylgja með í stykkinu en færið prjónamerkin inn að ermi í hvorri hlið þannig að öll prjónamerkin séu staðsett á milli 2 l. Heklið síðan umferð með áferð fram og til baka eins og á fram- og bakstykki með 1 l í hverja l. JAFNFRAMT eftir 3-3-3-4 (4-4) cm er aukið út í 2 næstu umf eins og útskýrt er í A.2. Eftir síðustu útaukningu mælist kraginn ca 5-5-5-6 (6-6) cm. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR MEÐFRAM MIÐJU AÐ FRAMAN: Heklið með litnum natur þannig: Byrjið frá röngu neðst niðri á vinstra framstykki og heklið 1 umf fl upp meðfram miðju að framan og síðan yfir 3 l efst uppi við hálsmál áður en kraginn byrjar – heklið ca 2 fl um hverja st-umferð og 1 fl í hverja fl-umferð. Snúið við og heklið til baka þannig: * 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf þar til komið er neðst niðri á kant að framan. Klippið frá og festið enda og endurtakið meðfram hægra framstykki með byrjun frá röngu efst uppi við hálsmál. HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM KRAGA: Heklið með litnum natur þannig: Byrjið frá réttu þar sem kraginn byrjar eftir 3 l efst uppi við hálsmál og heklið 1 umf fl í kringum allan kragann þar sem kraginn endar á undan 3 l efst uppi við hálsmál í hinni hliðinni. Snúið við og heklið til baka þannig: * 3 ll, hoppið yfir ca 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* - ATH: Stillið af að fjöldi ll-boga sé deilanlegur með 2 + 1. Snúið við og heklið kant að lokum með sólfjöðrum frá réttu þannig: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boganum, 3 ll (jafngilda 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st í næsta ll-boga, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. Klippið frá og festið enda. SLAUFA: Heklið 11 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 7 næstu ll = 9 st í umf. Snúið við og heklið UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10 cm – endið eftir 1 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Saumið saman skammhliðar og myndið hring og snúið smá þræði í kringum miðjuna á slaufunni þannig að hún dragist fallega saman fyrir miðju. Saumið slaufuna niður efst í hægra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (113)
Jessica PETIOT wrote:
Bonjour, concernant les augmentations du col en suivant le diagramme A2, si je comprends bien il faut faire en tout au rang 1 8 augmentations c'est à dire une de chaque côté du marqueur de maille, puis au rang 2 il ne faut faire que 4 augmentations?
30.05.2024 - 03:13DROPS Design answered:
Bonjour Mme Petiot, tout à fait, c'est bien ainsi que l'on doit procéder. Bon crochet!
30.05.2024 - 08:03Ana wrote:
Hola, tengo algunas preguntas sobre el cuello. ¿El cuello se trabaja sobre la elevación en la parte de atrás del cuello? ¿En qué puntos se hacen las diminuciones para una talla de 12/18 meses para que queden los 64 puntos de la primera vuelta?¿En el diagrama A.2 la flecha indica los MP de cada linea de raglan o el patrón debe repetirse a lo largo de toda la vuelta? Gracias
29.04.2024 - 18:38DROPS Design answered:
Hola Ana, el cuello se trabaja sobre todo el escote, incluyendo la elevación en la parte posterior del escote. Tienes que trabajar disminuciones repartidas y trabajar juntos cada 5º y 6º pt aproximadamente para obtener el nº de pts necesarios. A.2 solo indica cómo trabajar exactamente en la línea del raglán; los marcapuntos indicados son los de la línea del raglán (no se repiten toda la vuelta, solo en las líneas del raglán).
05.05.2024 - 22:52Wendy wrote:
The yarn is discontinued. What would be a reasonable substitute?
17.02.2024 - 13:05DROPS Design answered:
Dear Wendy, you could use DROPS BabyMerino, DROPS Flora, DROPS Nord or DROPS Alpaca. Happy knitting!
18.02.2024 - 22:24Katia wrote:
Bonjour, Je ne comprend pas où je dois commencer pour la ré-hausse de l'encolure dos. J'ai mis les marqueurs dans les raclant mais je ne comprend pas "commencer à la 11e m", je ne commence pas au début de l'encolure? Merci d'avance pour votre réponse Cordialement. Katia
23.03.2023 - 11:17DROPS Design answered:
Bonjour Katia, non on ne commence par au bord des devants, mais après: comptez à partir de la 1ère maille du devant droit (sur l'endroit) et commencez dans la 11ème maille à partir du bord. Coupez le fil à la fin des rangs de la ré-hausse et crochetez ensuite le col en commençant dans la 4ème maille à partir du bord. Bon crochet!
23.03.2023 - 12:44Karoline wrote:
Hei, og takk for tidligere svar! Jeg er helt amatør, og lurer nå på hvor jeg skal øke? Altså, jeg vet at jeg øker ved å hekle to st i samme fm. Det står at jeg skal øke på hver side av merkingen. Vil det si at jeg skal øke på samme sted hver gang, rett ved siden av merket? Eller skal jeg fordele økningen over flere steder for hver gang jeg øker?
13.03.2023 - 20:44DROPS Design answered:
Hei Karoline, Du skal alltid øke på hver side av merkene (rett før og rett etter). God fornøyelse!
20.03.2023 - 07:01Karoline wrote:
Hvordan blir det 102 masker etter første gang jeg har lagt ut? Det skal jo legges ut 2st+2lm+2st og det er markert med tråd 4 ganger… For meg blir dette 16 økte masker fra start, ikke 12 som det står. Hva gjør jeg galt?
12.02.2023 - 20:17DROPS Design answered:
Hei Karoline, Du hekler 4 st i hver st med merketråd (3 st økt). Da blir det 12 st økt på raden. God fornøyelse!
13.02.2023 - 07:00José Engering wrote:
Wanneer in een beschrijving bv staat: Maat: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 maanden (2 - 3/4) jaar\ Maat in cm: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104) is dan: 0/1-1/3 maat 48/52 zoals we die in Nederland in de winkel kopen? En is dan: Haak 83-87-91-91 (91-95) 83/87 voor bovenstaande voorbeeld? Ik denk het wel maar wil het zeker weten vóór ik begin . Zijn er meer haakpatronen voor babyvestjes? ik kan er maar een paar vinden, Met hartelijke dank voor de genomen moeite, José
03.01.2023 - 14:07DROPS Design answered:
Dag José,
In principe zou dit zo moeten zijn, dus dat de maten kloppen volgens de confectiematen. Je kunt ook altijd naar de maattekening kijken en deze vergelijken met een kledingstuk dat goed zit.
04.01.2023 - 21:07Anette wrote:
Jag har virkat 7 st raglanökningar 2 st 2 lm 2 st i varje markering . Virkar storlek 86, men har inte 214 m. Det fattas 16 m och det borde vara 1 ökning till. Vad har jag missat? Sen undrarjag på…. Hoppa över ärmmaskorna, lägg upp 6 lm….hur gör jag?
09.09.2022 - 10:59DROPS Design answered:
Hei Anette. Når du har satt 4 merker i arbeidet har du 17+1+14+1+24+1+14+1+17 masker = 90. Så hekler du 1 stav i hver fm, men i hver fm med merketråd i hekles det 2 st + 2 lm + 2 st = 102 st på raden (økt med 12 masker). Nå starter raglanøkningene, totalt 7 ganger. 16 økte masker pr økeomgang = 7x16=112 økte masker + de 102 du hadde i starten = 112+102= 214 masker. Angående hopp over armmaskene, Hekle slik det står i oppskriften, deretter hekles bol og ermene videre hver for seg. Når bolen er ferdig heklet, vil du se at du har 2 hull til ermene, som nå skal hekles hver for seg. mvh DROPS Design
12.09.2022 - 08:58Amani Elhusseini wrote:
Ok thank you. In regards to the sleeve where do we start? Do we only work in the stitches from yoke or do we work into the 6 chains under the arm (that we made fot the body) too?
14.03.2022 - 00:31DROPS Design answered:
Dear Mrs Elhusseini, start sleeve crocheting 3 chains, then work the stitches on sleeve and finish row with 5 chains, turn and crochet next row as explained. At the end of work you will sew together the opening under sleeves. Happy crocheting!
14.03.2022 - 13:50Amani Elhusseini wrote:
Thank you for this lovely pattern however Can you please upload a video or photos on how to do the sleeve as it is very confusing
13.03.2022 - 02:03DROPS Design answered:
Dear Amani, we don't make personalized videos, but you can find all of our related videos, which may help you make this pattern below the pattern. Happy crochetting!
13.03.2022 - 22:37