DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Center of my Heart

Peysa með gatamynstri, prjónuð frá miðju og út í ferning úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-56
DROPS Design: Mynstur as-067
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
125-150-175-175-200 g litur 06, kórall

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 28 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugði'*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GATAUMFERÐ:
Ný gataumferð byrjar í miðju á A.2 í 2. umferð og fer á ská að hornlykkjum með prjónamerki í. Öll gataumferðin í A.1 og A.2 heldur áfram út þar til allt stykkið hefur verið prjónað til loka.
Mynsturteikning A.2 (= 14 umferðir) er endurtekið á hæðina þar til stykkið hefur verið prjónað til loka (nema frá hlið á háls). Passið uppá að lykkjur með ör komi beint yfir hverja aðra.

GÖT (ermi):
Á ermum er prjónuð gataumferð að saum mitt undir ermi, í umferð með útaukningu eru prjónaðar sléttar lykkjur og aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = gat. Í þeim umferðum sem eftir eru er prjónað þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið þessar 2 umferðir.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur slétt, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig, eins og ferningur.
Byrjið í miðju. Fitjið upp og prjónið með sokkaprjónum, skiptið yfir á hringprjón eftir þörf.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 8-8-8-8-8 lykkjur með Brushed Alpaca Silk og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 (= 2 lykkjur á hverjum prjóni). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu lykkju (= 4 hornlykkjur með prjónamerki í), látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Hinar fjórar lykkjurnar eru miðjulykkjur. Prjónið þannig: A.1 alls 4 sinnum hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 29-29-29-29-29 lykkjur á milli hverra lykkja með prjónamerki í = 120-120-120-120-120 lykkjur í umferð.

Prjónið nú A.2 á hæðina – LESIÐ GATAUMFERÐ að ofan. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hornlykkju eins og áður (= alls 8 útauknar lykkjur í annarri hverri umferð) – ATH: Á milli fyrsta og annars prjónamerkis (= hlið á hálsi) endurtakið A.2, 1-1-2-2-3 sinum til viðbótar (prjónið síðan áfram þessa hlið í garðaprjóni), en í hinum 3 hliðunum er A.2 endurtekið áfram á hæðina til loka.

Haldið svona áfram þar til 240-264-288-304-336 lykkjur eru eftir í umferð (= 29-32-35-37-41 útaukningar og 59-65-71-75-83 lykkjur á milli hverra lykkju með prjónamerki) og stykkið mælist ca 40-44-48-51-56 cm. Endið eftir 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt með mynstur og útaukningar eins og áður og setjið miðju 15-15-15-17-17 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð fyrir hálsmáli eftir að þær eru prjónaðar. Klippið frá. Prjónið síðan stykkið fram og til baka. Byrjið við háls og prjónið næstu umferð frá röngu.

Haldið áfram með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, útaukning og nýjar gataumferðir. JAFNFRAMT er fellt af við háls í annarri hverri umferð þannig: Fellið af í byrjun hverrar umferðar, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum.
Haldið áfram með útaukningar þar til 309-333-357-387-419 lykkjur eru eftir í umferð (= 41-44-47-51-55 útaukningar). Nú eru 83-89-95-103-111 lykkjur á milli hverra lykkja með prjónamerki, 28-31-34-37-41 lykkjur í hverri umferð). Nú er prjónað áfram á milli 3. og 4. prjónamerkis og þær lykkjur sem eftir eru, eru felldar af. Byrjið frá röngu, fellið af allar lykkjur fram að og með lykkju með 4. prjónamerki, fellið af og prjónið fram að 3. prjónamerki og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Byrjið frá réttu, prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 83-89-95-103-111 lykkjur, fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Þau sýna hvar ermarnar eru saumaðar í.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til það eru 240-264-288-304-336 lykkjur í umferð (= 29-32-35-37-41 útaukningar og 59-65-71-75-83 lykkjur á milli hverra prjónamerkja). Á bakstykki er haldið áfram alveg eins þar til 288-312-336-368-392 lykkjur eru eftir í umferð (= 35-38-41-45-48 útaukningar og 71-77-83-91-97 lykkjur á milli hverra prjónamerkja). Endið eftir 1 umferð brugðið. Prjónið nú 1 umferð slétt með mynstri og útaukningar eins og áður og fellið af miðju 27-27-27-29-29 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis fyrir hálsmáli. Prjónið út umferðina og klippið frá. Prjónið síðan stykkið fram og til baka. Byrjið við háls og prjónið næstu umferð frá röngu. Haldið áfram með garðaprjón, útaukningar og nýja gataumferð eins og áður. Haldið áfram með útaukningar þar til 309-333-357-387-419 lykkjur eru í umferð (= 41-44-47-51-55 útaukningar). Nú eru 83-89-95-103-111 lykkjur á milli hverra lykkja með prjónamerki, 28-31-34-35-41 lykkjur á hvorri öxl). Nú er prjónað áfram á milli 3. og 4. prjónamerki og þær lykkjur sem eftir eru, eru felldar af. Byrjið frá röngu, fellið af allar lykkjur fram að og með lykkju með 4. prjónamerki, fellið af, prjónið fram að 3. prjónamerki og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Byrjið frá réttu, prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 83-89-95-103-111 lykkjur, fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Þau sýna hvar ermarnar eru saumaðar í.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 33-34-35-36-39 lykkjur á hringprjón 6 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Haldið svona áfram upp með garðaprjóni og GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3-4-4-2-4 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 3-2½-2-2-1½ cm millibili 9-10-11-12-12 sinnum til viðbótar = 53-56-59-62-65 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 32-31-30-28-26 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í niður að prjónamerki á framstykki/bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju, skiljið eftir neðstu 9 cm fyrir klauf.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 66 til 74 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) með stutta hringprjóna í kringum háls. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn og fellið af.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt
symbols = miðjulykkja á milli 2 lykkja
symbols = slétt lykkja með prjónamerki í
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-56

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Maria wrote:

Ho lo stesso problema segnalato da Monica tempo fa.:Buongiorno nelle istituzioni per il davanti è indicato di ripetere A2 per 2 volte in totale nella parte fra il 1 e 2 marker, e poi continuare a legaccio, dalla foto sembrerebbe che A2 venga invece ripetuto una volta soltanto nella parte destinata allo scollo, vorrei un chiarimento. Potreste spiegare?

18.02.2024 - 11:22

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, quale taglia sta lavorando? A.2 viene ripetuto 1 volta per le taglie S e M. Buon lavoro!

17.03.2024 - 19:07

country flag Teresa wrote:

Me encantaría poder hacer esta prenda pero las instrucciones son extremadamente complejas y temo empezar para no poder terminar. No entiendo como se hace el primer cuadrado de partida con 8-8-8-8-8 yo entiendo que solo son 4 grupos de 8, no 5 y por otra parte la 5ª aguja se usa para tricotar los puntos de las otras 4 no?

24.01.2019 - 01:30

DROPS Design answered:

Hola Teresa. Todos los patrones de Drops están escritos para las tallas S-XXL. Cuando hay números seguidos como en tu caso ( 8-8-8-8-8 ) significa, que para la talla S hay que montar 8 puntos, para la talla M - 8 puntos etc. Después estos 8 puntos se reparten en 4 agujas para trabajar. Si solo hay un número es porque es el mismo para todas las tallas.

24.01.2019 - 15:21

country flag Britt Dagkvist wrote:

Jag har köpt garn till denna tröja. Förstår inte riktigt hur jag stickar den. Skall börja med strumpstickor. Sen när det gäller mönstret, skall man bara räkna detta från rätsidan?

06.10.2018 - 13:54

DROPS Design answered:

Hej Britt, du stickar framstycket från mitten och ut, dvs att du bara stickar från rätsidan. Du stickar och ökar enligt A.1. Diagram A.1 stickas 4 ggr på varje varv. Lycka till :)

09.10.2018 - 09:41

country flag Nataliya wrote:

Hvordan kan man sjekke ferdig mål når alt er på rundpinner i en slag av lomme? Man får ikke å strekke arbeidet for å måle. Det var en kommentar. Sporsmål: jeg er nesten ferdig med forstykket og forstår ikke hvordan å felle?Hva er delen som skal strikkes 2 pinner til? Hvorfor?

26.04.2018 - 20:07

country flag Marie Mamieflo wrote:

Merci beaucoup J'ai réessayé avec une autre laine et là ça va tout seul. Mais avec cette laine Brushed Alpaca Silk très fine et poilue, ce n'est vraiment pas facile . je vais m'y remettre à nouveau, mais...

07.03.2018 - 17:09

country flag Marie wrote:

Je n'y arrive pas . J'ai compris le montage, compris le diagramme mais cela fait quatre fois que je recommence et pour moi c'est impossible avec ces 4 aiguilles , pourtant je tricote beaucoup de chaussettes, robes pulls adultes enfants bébés mais là, j'abandonne , que faire de mes deux manches, de la laine ?

06.03.2018 - 21:18

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, vous pouvez essayer avec la technique du magic loop, certaines la préfère aux 4 aiguilles. Le début peut paraître un peu complexe, mais ça vaut le coup de s'y attacher. Cette vidéo montre le début d'un carré d'un autre modèle et pourra peut-être vous aider à avancer. N'hésitez pas à vous adresser à votre magasin, il pourra fort probablement vous aider. Bon tricot!

07.03.2018 - 08:34

country flag Marie wrote:

J'ai tricoté les deux manches mais pour le devant je ne comprends pas cela ne se tricote pas en rond ? mais en aller et retour j'ai essayé deux fois, c'est difficile le démarrage. J'ai tout défait, j'ai besoin d'aide. Merci

02.03.2018 - 21:59

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, le devant se tricote en rond à partir du milieu du motif, on va d'abord tricoter un carré (=4 x A.1) puis A.2. Quand le carré aura la bonne taille, on va glisser en attente les mailles de l'encolure et continuer en allers et retours à partir de l'encolure. Bon tricot!

05.03.2018 - 08:15

country flag Irina P wrote:

Verstehe! Vielen Dank für die schnelle Antwort! Der Pulli wird echt schön wrden. Stricke mit original Wolle in der gleichen Farbe. DANKE

05.02.2018 - 11:24

country flag Irina.P wrote:

Hallo liebe Federica, habe Vorder-und Rückenteil fertig gestrickt, nun sind die Ärmel dran, aber , ich verstehe nicht wie die Lochstreifen verlaufen sollen. Leider kann man es auch auf dem Foto nicht siehen, Sind es zwei Streifen insgesamt ?

05.02.2018 - 01:04

DROPS Design answered:

Liebe Irina, mitte unter der Ärmel wird man Maschen zunehmen - siehe ZUNAHMEINFO, damit es immer Löcher mitte unter der Ärmel gibt, wird man stricken wie unter LOCHSTREIFEN (Ärmel) beschrieben. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2018 - 10:36

country flag Monica wrote:

Ho notato che sono state apportate delle correzioni al testo del pattern che io ho stampato tempo addietro. Mi potete indicare quali sono le modifiche?

22.12.2017 - 05:19

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica. Le modifiche sono modifiche di terminologia e sono davvero molto limitate. Non sono state modificate misure o numero delle maglie. Buon lavoro!

24.12.2017 - 11:26