Berry Diamond Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og blöðruermum úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-17 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda sem eftir er með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 8,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 8. og 9. hver lykkja saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.14. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.14). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-10-10-9-9½-10 cm millibili. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá skiptingu á milli erma og bakstykkis, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 97-101-105-109-113-117 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 15 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-16-18-20 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-16-18-20 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.3 (= 15 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Nú eru 105-109-113-117-121-125 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á fram- og bakstykki er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1, A.2 og A.3. Á ermum er aukið út í hvorri hlið með uppslætti hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni. Laskalína er alltaf 2 lykkjur sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Á ermum eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. Á fram- og bakstykki eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1, A.2 og A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 169-173-177-181-185-189 lykkjur í umferð. Útaukningar bæði á ermum og fram- og bakstykki heldur áfram eins og áður, en nú er prjónað mynstur A.4 til A.8 yfir A.1 til A.3 þannig: Prjónið A.4 (= 24 lykkjur) yfir A.1, yfir 47 lykkjur í A.2 er prjónað þannig: Prjónið A.5 (= 2 lykkjur), prjónið A.6 yfir 42 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 14 lykkjum) og prjónið A.7 (= 3 lykkjur). Prjónið A.8 (= 24 lykkjur) yfir A.3. Kantlykkjur að framan, laskalína og ermar er prjónað eins og áður. Þegar prjónað hefur verið til og með umferð merktri með ör í þinni stærð hefur verið aukið út alls 18-21-22-24-26-29 sinnum frá byrjun á berustykki og nú eru 241-269-281-301-321-349 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-24-25-27-29-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 41-44-46-50-54-59 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-52-54-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-81-89-97-107 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-52-54-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 41-44-46-50-54-59 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 169-181-193-209-229-249 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig (byrjið í umferð merktri með ör í þinni stærð þannig að mynstrið haldi áfram): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.9a (= 7 lykkjur), prjónið A.10a yfir næstu 14-14-14-14-28-28 lykkjurnar (= 1-1-1-1-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.11a (= 16 lykkjur), prjónið 6-12-18-26-8-18 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.12a (= 15 lykkjur), prjónið A.10a yfir næstu 42-42-42-42-70-70 lykkjurnar (= 3-3-3-3-5-5 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.11a (= 16 lykkjur), prjónið 6-12-18-26-8-18 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.12a (= 15 lykkjur), prjónið A.10a yfir næstu 14-14-14-14-28-28 lykkjurnar (= 1-1-1-1-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.13a (= 8 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Endurtakið A.9a til A.13a á hæðina (þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður) þar til stykkið mælist ca 4-5-4-6-4-4 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Prjónið nú áfram með A.9b til A.13b, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Prjónið þar til A.9b til A.13b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 28-27-28-28-28-27 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 31-35-39-39-43-51 lykkjur jafnt yfir = 200-216-232-248-272-300 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 5,5. ERMI: Setjið 44-52-54-56-58-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-60-64-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-5-2-3-0-2 sinnum = 50-50-60-60-70-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-8-8-6-8-6 cm er mynstur prjónað hringinn þannig: Prjónið A.14a yfir allar lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.14a hefur verið prjónað til loka eru 70-70-84-84-84-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.14b. Endurtakið A.14b á hæðina þar til stykkið mælist ca 41-38-38-36-34-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu) – stillið af að endað sé eftir heila einingu á hæðina. Prjónið síðan A.14c. Þegar A.14c hefur verið prjónað til loka eru 35-35-42-42-42-42 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-6-6-2-2 lykkjur jafnt yfir = 32-32-36-36-40-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 5,5. Ermin mælist ca 48-45-45-43-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (35)
Blais wrote:
Bonjour, Je voulais savoir si des le début de l’empiètement, les augmentations se font tous les deux rangs pour les raglans de manches et tous les qu’âtres rangs pour les motifs? Merci bien. Stéphanie
05.11.2023 - 18:01DROPS Design answered:
Bonjour Mme Blais, on doit augmenter pour le raglan tous les rangs sur l'endroit, autrement dit tous les 2 rangs, et ce à chaque raglan, on va donc augmenter 8 mailles tous les 2 rangs: 1 pour chaque devant et 2 pour chaque manche et le dos. Bon tricot!
06.11.2023 - 08:48Michelle wrote:
Love this pattern but have two questions: Chart A.13 says to begin the medium size 7 rows up. Is this also the same row to begin chart A.12 or just begin at the bottom? In the Body directions when repeating A.9a to A.13a vertically, the pattern goes on to state “adjust to finish after a whole repetition vertically”—how would one adjust? Thank you for your help!
17.03.2023 - 16:16DROPS Design answered:
Dear Michelle, the arrows are only applied to both, so start both charts at the same arrow. About adjusting, it means that when the piece measures approx. 5cm (for M size) it may measure a bit less or a bit more than 5cm (a few mm) but the important thing is that the last row worked is the last row of the charts, so that the pattern will fit for the next rows. Happy knitting!
19.03.2023 - 23:42Viviana wrote:
Buongiorno, non riesco a capire quando devo cominciare ad usare A10b, A11b, A12b sul corpo
10.05.2022 - 07:34DROPS Design answered:
Buongiorno Viviana, deve lavorare i diagrammi A.9a - A.13a una volta e poi procede con A.9b - A.13b. Buon lavoro!
10.05.2022 - 12:51Viviana wrote:
Mi riferivo ai raglan ma lavorando ho capito, grazie!
10.05.2022 - 07:29Viviana wrote:
Buongiorno, non riesco a capire se i gettati prima e dopo i ragazzi devono essere "chiusi" o se deve rimanere il buco. Dalla foto mi sembra rimanga il buchetto, grazie.
12.04.2022 - 07:57DROPS Design answered:
Buonasera Viviana, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!
01.05.2022 - 23:37Namrata wrote:
Hi, I am a bit confused on following the row for the sleeves (small size) where we start increasing - is it two stitches every eight row until we have 70 stitches starting from 50. Or is it increasing ten stitches every eight row two times over so that we have 70stitches, Please advise. Thank you Namrata
04.06.2021 - 21:26DROPS Design answered:
Dear Namrata, you decrease 2 stitches at EACH repeat of the the A.14 pattern (in size S twice). So there is a decrease of 10 stitches in the 3d and in the 11th round. Happy Knitting!
07.06.2021 - 03:31Donna Jensen wrote:
Does the 88 beginning stitches already include the edges or do you need to add 10 more for the edges
22.04.2021 - 22:39DROPS Design answered:
Dear Donna, the 88 stitches already include the edge / band stitches, you don't need to add them. Happy Knitting,
23.04.2021 - 01:36Anaïs wrote:
Merci pour votre réponse !
25.01.2021 - 10:05Anaïs wrote:
Bonjour, merci beaucoup pour ce magnifique modèle ! J'aurais une petite question. Je viens de finir l'empiècement au niveau de la flèche (L). Je me demandais si après avois fait glisser les mailles de la manche il fallait reprendre le motif de A4, A5, A6, A7, A8 pour le terminer ou si on reprenait directement à A9, A10, etc. ? Je vous remercie. Bonne journée.
24.01.2021 - 00:49DROPS Design answered:
Bonjour Anaïs, lorsque vous avez glissé les mailles des manches en attente, vous tricotez de suite A.9, A.10 etc.. mais choisissez bien votre rang pour continuer le motif après l'empiècement. Bon tricot!
25.01.2021 - 09:21Postema wrote:
Hoe brij ik een steek gedraaid averecht?
23.11.2020 - 10:10DROPS Design answered:
Dag Postema,
Dit doe je door de naald in de achterste lus van de steek te steken en vervolgens normaal averecht breien. Zie ook onderstaande video waarin te zien is dat op de teruggaande naald in de tweede omslag de naald in de achterste lus gestoken wordt.
24.11.2020 - 13:37