Avriel Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa í klukkuprjóni og v-hálsmáli úr DROPS Air. Stærð S – XXXL.
DROPS 210-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI: 2 umferðir í klukkuprjóni gera 1 sýnilega lykkju á hæðina. UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið* , endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju (lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju (lykkjum), prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚRTAKA (hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (uppslátturinn er ekki talinn sem ein lykkja og er prjónaður snúinn saman við 2 lykkjurnar = 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 5 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur brugðið saman (uppslátturinn er ekki talinn sem ein lykkja og er prjónaður saman með 2 lykkjurnar = 1 lykkja færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 11, 19, 27 og 35 cm M: 13, 21, 29 og 37 cm L: 15, 23, 31 og 39 cm XL: 17, 25, 33 og 41 cm XXL: 11, 19, 27, 35 og 43 cm XXXL: 13, 21, 29, 37 og 45 cm ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 63-67-71-77-83-91 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja klauf í hliðum. Haldið áfram í klukkuprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 59-63-67-73-79-87 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, prjónið hálsmál þannig: Haldið áfram í klukkuprjóni, en prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur í umferð (uppslátturinn er ekki talinn sem lykkja og er prjónaður saman við hverja lausa lykkju í fyrstu umferð). Eftir 4 umferðir garðaprjón, eru felldar af miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 25-27-28-31-33-37 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á 1 þráð. Haldið áfram fram og til baka yfir 25-27-28-31-33-37 lykkjur í klukkuprjóni, 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 5 kantlykkjur í garðaprjóni við háls að aftan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lyftu sléttu lykkjunum þegar fellt er af). Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 37-39-41-43-47-51 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni (5 lykkjur garðaprjón = mitt að framan og 3 lykkjur garðaprjón = hlið). Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16 cm setjið 1 prjónamerki í hlið, prjónamerkið merkir klauf í hliðum. Prjónið síðan klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið (og 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan). Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli frá réttu – sjá ÚRTKA: Fækkið um 1 lykkju alls 11-11-12-11-13-13 sinnum í 4. hverri umferð. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í hlið. Haldið áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið (og 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan) = 24-26-27-30-32-36 lykkjur í umferð. Prjónið með kantlykkjum og klukkuprjóni þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lyftu sléttu lykkjunum þegar fellt er af). VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 37-39-41-43-47-51 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni (5 lykkjur garðaprjón = mitt að framan og 3 lykkjur garðaprjón = hlið). Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram eins og hægra framstykki, fellið ekki af fyrir hnappagötum. ERMI: Fitjið aðeins laust upp 23-25-25-27-27-29 lykkjur á prjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hið. Þegar stykkið mælist 8 cm aukið út 1 lykkju í hvorri hlið -sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4½-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 9-9-11-11-12-12 sinnum = 41-43-47-49-51-53 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-47-46-45-43-41 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja hvar eigi að sauma ermi við handveg. Prjónið áfram þar til ermin mælist 1 cm frá prjónamerki (öll ermin mælist ca 49-48-47-46-44-42 cm – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lausum sléttum lykkjum þegar fellt er af). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið botninn á handveg (prjónamerki á ermi á að passa með hliðarsaum á fram- og bakstykki). Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir ca 16 cm neðst niðri á fram- og bakstykki fyrir klauf. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Laura wrote:
Dove posso trovare un video per lo scollo del dietro di questo modello DROPS 210-26 DROPS Design: Modello n° ai-257? Non capisco le istruzioni, grazie
09.03.2024 - 17:33DROPS Design answered:
Buonasera Laura, non abbiamo un video specifico per il dietro di questo modello: può indicarci la parte che non le è chiara? Buon lavoro!
11.03.2024 - 23:45Claudine Gilbert wrote:
Quelles formidables explications ! A tous points de vue , tout -y est . J'aurais tellement voulu le faire , mais avec des aiguilles bien plus fines ( ex. : No 4) . Je cherche encore sur votre site !
06.06.2020 - 13:21Geneviève wrote:
Bonjour. Je ne comprends pas les diminutions après les 5 mailles de bordure devant: "tricoter 2 mailles ensemble TORSE à l'envers ". En anglais le mot "torse" est "twisted", ce que je comprends mieux, mais je ne vois quand même pas ce qu'il faut faire, je ne vois pas la différence avec la diminution AVANT les 5 mailles de bordure, où le mot "torse" ne figure pas
25.05.2020 - 12:09DROPS Design answered:
Bonjour Geneviève, quand on tricote des mailles ensemble, on les tricote dans le brin avant (cf vidéo 2 mailles ensemble à l'envers, quand on les tricote ensemble torse, on va les tricoter dans le brin arrière, cf vidéo "2 mailles ensemble torse à l'envers. Bon tricot!
25.05.2020 - 13:18Yvonne wrote:
Mooi vest hoop dat de omschrijving snel komt
16.01.2020 - 15:52Kersti H-B Lycke wrote:
Lun
02.01.2020 - 14:08Anne Larsen wrote:
Lækker og luftig cardigan
27.12.2019 - 18:25