Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Baby Blue Note |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni. Stærð 6 mánaða – 8 ára.
DROPS Baby 36-13 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og 1 lykkja slétt. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum, ofan frá og niður. Stykkin eru saumuð saman og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, auknar eru út lykkjur fyrir hálsmáli, áður en þær eru settar saman og síðustu lykkjur fyrir hálsmáli eru fitjaðar upp á milli stykkja. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 12-13 (14-14-16-17) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 5,5 með Air. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum frá réttu – sjá ÚTAUKNING = 14-15 (16-16-18-19) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðustu umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl, en aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 lykkju í lok umferðar frá réttu. BAKSTYKKI: Prjónið vinstri öxl og hægri öxl saman frá réttu, þannig: Prjónið yfir 14-15 (16-16-18-19) lykkjur frá vinstri öxl, fitjið upp 18-18 (20-22-22-24) lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið yfir 14-15 (16-16-18-19) lykkjur frá hægri öxl = 46-48 (52-54-58-62) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 11-12 (13-14-15-16) cm, fitjið upp 1 lykkju fyrir handveg í lok 2 næstu umferðum = 48-50 (54-56-60-64) lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-29 (32-36-40-44) cm (nú eru 4 cm eftir), aukið út 8-6 (6-8-8-8) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu = 56-56 (60-64-68-72) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING. FRAMSTYKKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, auknar eru út lykkjur fyrir hálsmáli, áður en þær eru settar saman og síðustu lykkjurnar fyrir hálsmáli eru fitjaðar upp á milli stykkja. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 12-13 (14-14-16-17) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 5,5 með Air. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 3-4 (4-5-5-6) cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = 16-17 (18-18-20-21) lykkjur. Prjónið síðustu umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 5-6 (6-7-7-8) cm. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp og prjónið eins og vinstri öxl, en aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 lykkju í lok umferðar frá réttu. FRAMSTYKKI: Prjónið hægri öxl og vinstri öxl saman frá réttu, þannig: Prjónið yfir 16-17 (18-18-20-21) lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 14-14 (16-18-18-20) lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið yfir 16-17 (18-18-20-21) lykkjur frá vinstri öxl = 46-48 (52-54-58-62) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 11-12 (13-14-15-16) cm, fitjið upp 1 lykkju fyrir handveg í lok 2 næstu umferðum = 48-50 (54-56-60-64) lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-29 (32-36-40-44) cm (nú eru 4 cm eftir), aukið út 8-6 (6-8-8-8) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu = 56-56 (60-64-68-72) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Fitjið upp 35-38 (42-45-48-51) lykkjur á hringprjón 5,5 með Air. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3 (3-4-4-4) cm millibili alls 4-5 (6-6-7-8) sinnum = 27-28 (30-33-34-35) lykkjur. Þegar ermin mælist 16-19 (24-28-32-36) cm (nú eru eftir 3 cm), aukið út 1-0 (2-3-2-1) lykkjur jafnt yfir = 28-28 (32-36-36-36) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff með byrjun frá réttu (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 19-22 (27-31-35-39) cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið ermasaum og hliðarsaum í eitt, innan við 1 kantlykkju garðaprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Takið upp ca 40 til 64 lykkjur (stillið af að lykkjufjöldinn verði deilanlegur með 4) á sokkaprjóna 4,5 með Air innan við 1 kantlykkju. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 2 cm. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (35)
Rina wrote:
Wat mij opvalt, is dat je bij het achter- en voorpand moet meerderen voor de boord. Normaal gesproken (als je een trui van beneden naar boven breit) moet je meerderen vanaf het boord naar de rest van het werk.
15.01.2024 - 09:53DROPS Design answered:
Dag Rina,
Dat klopt. De boord trekt het werk samen en om dit te voorkomen wordt er gemeerderd, zodat hij meer recht doorloopt.
17.01.2024 - 17:57Kristin wrote:
Hei:) Jeg er nybegynner i strikking og lurte på hvilken vanskelighetsgrad denne genseren har? Jeg har bare strikket pannebånd før og er veldig glad i å strikke med Drops Air:) Mvh Kristin
09.01.2024 - 12:39DROPS Design answered:
Hej Kristin, jo det fikser du :) Bare følg opskriften pind for pind og så spørg hvis du bliver usikker. Husk at skrive hvilken størrelse du strikker og hvor du er i opskriften :)
11.01.2024 - 15:17Annika wrote:
Hej! Såg att någon annan har frågat exakt detta men fick inte svar på själva frågan. Nämligen om man ska mäta från uppläggningskanten för halsen eller uppläggningskanten för skuldran när man mäter för nya maskor till ärmhålan?
10.11.2023 - 22:21DROPS Design answered:
Hei Annika. Hvis ikke det står noe annet skal man måle fra oppleggskanten. I denne oppskriften er oppleggskanten høyre skulder/venstre skulder. Det er her genseren starter (ikke ved halskanten). Målene kan man også sjekke ved å se på målskissen, den finner du nederst på oppskriften. mvh DROPS Design
13.11.2023 - 13:45Jette Dam wrote:
Kan jeg bruge denne opskrift til en vest og så bare strikke rib på ærmegabet? Og er der en lignende opskrift i str 3 måneder?
07.11.2023 - 07:50DROPS Design answered:
Hej Jette, ja det kan du gøre, men sørg for at ærmegabet ikke bliver for lille. Her kan du se hvilke veste vi har til baby: Toppe & Veste til baby
09.11.2023 - 15:37Michaela wrote:
Ich stricke die Droos Anleitungen sehr gerne, leider vermisse ich genauere Maßangaben. Die unter Ärmelweite sowie die Tiefe des Halsausschnittes fehlen. Das ist Schade, ich musste deswegen schon oftmals fertige Arbeiten auftrennen. Vielleicht könnte man diese Maße in Zukunftmin die Diagramme einfügen. LG Michaela
15.10.2023 - 16:54DROPS Design answered:
Liebe Michaela, danke für den Vorschlag. Viel Spaß beim stricken!
16.10.2023 - 09:59Kerstin wrote:
Dieser Pullover lässt sich gut nachstricken, die Anleitung ist leicht verständlich, aber wie ich finde etwas umständlich. Dass man Vorder- und Rückteil in Hin- und Rückrunden strickt, leuchtet mir ein, aber die Ärmel hätte man sicherlich in Runden machen können(weniger Nähte). Trotzdem hat es gut geklappt und die finalen Abmaße stimmten ebenfalls. Vielen Dank für die Anleitung!
04.09.2023 - 08:01Conny Duffert wrote:
Ich habe jetzt die Merino fine Wolle und möchte diesen Pullover stricken. Wird es größer oder kleiner? Welche Nadeln empfehlen sie?
10.08.2023 - 19:38DROPS Design answered:
Liebe Frau Duffert, wenn Sie DROPS Big Merino haben, dann können Sie diesen Pullover stricken - kalkulieren Sie die neue Garnmenge für die gewünschte Größe mit unserem Garnumrechner. Wenn Sie DROPS Baby Merino haben, dann können Sie auch mit 2 Fäden stricken (siehe Garnumrechner), aber mit DROPS Cotton Merino oder Merino Extra Fine (Garngruppe B) wird Ihre Maschenprobe unterschieden sein, am besten suchen Sie ein anderes Modell mit Garngruppe B. Viel Spaß beim stricken!
11.08.2023 - 09:44Fleur wrote:
Hallo, Bij het opzetten van de steken voor de mouw is mij niet duidelijk hoe ik de steken (12) opzet inclusief kantsteek: zijn het er 12 en blijven het er 12 of ik dan dus 14 steken op? Met vriendelijke groet, Fleur
29.05.2023 - 14:57DROPS Design answered:
Dag Fleur,
Het aangegeven aantal op te zetten steken is inclusief 1 kantsteek aan elke kant, dus je hoeft geen extra steken op te zetten.
01.06.2023 - 13:06Dianne Dell'Arciprete wrote:
Hello, I am a little confused about the sizing in the Baby Blue Note Sweater. I'm looking to knit the sweater in a size up from 5T but I don't see where there is a correlation between the measurements and the sizes? Also I see that you call the different weights of yarn differently from the US names. How would you compare weights? For examplle is A = to #2 DK? C=to #4 or worsted?
31.03.2023 - 21:30DROPS Design answered:
Dear Dianne, the measurements for each size are indicated in the schematic under the pattern instructions; (the first number is for the smallest size and the last number is for the largest size). These measurements are indicated in cm. Here you can find all of our yarns classified by our groups (A-F) and other systems: https://www.garnstudio.com/yarn-groups.php?cid=19 These don't always match, since we classify them according to their gauge and not just thickness. Happy knitting!
02.04.2023 - 20:14Helene Gervais wrote:
Je suis du Québec et nous parlons français. Combien dois-je monter de mailles pour le dos et combien pour le devant. Je ne trouve rien à ce sujet. Merci
18.01.2023 - 16:19DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gervais, si besoin, vous pouvez changer la langue en "français" en cliquant sur le menu déroulant sous la photo. Le pull se tricote de haut en bas en commençant par l'épaule droite du dos, vous retrouverez ainsi le nombre de mailles à monter pour la première épaule sous ÉPAULE DROITE: Monter 12-13 (14-14-16-17) mailles (y compris 1 maille lisière de chaque côté) avec l'aiguille circulaire 5,5 en Air. ... Bon tricot!
18.01.2023 - 17:04