Golden Moments |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, köðlum og kúlum. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-16 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3). ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 92 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. ÚRTAKA (á við um ermar): Ef gatamynstrið og úrtakan kemur í sömu umferð, stillið af að úrtakan komi í næstu umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-92-96-100-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-28-28-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-120-128-128-136-136 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki eftir ca 23-23-24-24-25-25 lykkjur (= ca mitt aftan á bakstykki), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið fyrsta prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), setjið næsta prjónamerki eftir 47-47-49-49-51-51 lykkjur (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), setjið næsta prjónamerki eftir 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), setjið næsta prjónamerki eftir 47-47-49-49-51-51 lykkju (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), nú eru 13-13-15-15-17-17 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið nú mynstur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir næstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur, A.2 yfir næstu 35 lykkjur, A.3 yfir næstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, byrjið á 5.-5.-4.-4.-3.-3. lykkju í A.4 og prjónið yfir næstu 11-11-13-13-15-15 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 22-26-29-31-35-39 sinnum = 296-328-360-376-416-448 lykkjur, jafnframt er mynstrið prjónað þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Mynstur fram- og bakstykki: Þegar A.1 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.5 yfir síðustu 13 lykkjur í A.1 og A.6 yfir fyrstu 13 lykkjur í A.3, þær lykkjur sem eftir eru við hverja laskalínu eru prjónaðar í sléttprjóni þar til aukið hefur verið út 16 sinnum fyrir laskalínu. Síðan, þegar byrjað er á 3. gatamynstrinu á hæðina á ermum (þ.e.a.s. í 33. umferð á berustykki), prjónið gatamynstur (A.4) alveg eins og á ermum. Þ.e.a.s. það eiga alltaf að vera 1-1-2-2-3-3 lykkjur slétt á milli ysta uppsláttar í gatamynstri og útaukningu fyrir laskalínu. Eftir því sem auknar eru út fleiri lykkjur fyrir laskalínu, prjónið eins mörg heil gatamynstur og pláss er fyrir. Mynstur ermar: Á ermum er endurtekið A.4 á hæðina og það eru prjónuð eins mörg gatamynstur og pláss er fyrir á breiddina. Það eiga alltaf að vera 1-1-2-2-3-3 lykkjur slétt á milli ysta uppsláttar í gatamynstri og útaukningu fyrir laskalínu. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð mælist stykkið ca 17-20-22-24-27-30 cm frá prjónamerki. Í stærð XS er prjónað áfram með mynstur (án útaukninga fyrir laskalínu) þar til stykkið mælist 20 cm frá prjónamerki. Ef stykkið mælist styttra en 20-22-24-27-30 cm í stærð S, M, L, XL og XXL er prjónað áfram í mynstri (án útaukninga fyrir laskalínu) að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 91-99-107-111-121-129 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 57-65-73-77-87-95 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), prjónið næstu 91-99-107-111-121-129 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57-65-73-77-87-95 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 198-214-230-246-266-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð í annarri hliðinni. Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og prjónið eins margar einingar með gatamynstri og pláss er fyrir í hverri hlið (gatamynstrin eiga að passa yfir hvert annað alveg eins og áður í stykkinu). Þær lykkjur sem eftir eru sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri, í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= 6-4-2-6-5-5 lykkjur sléttprjón á milli prjónamerkja í hlið og ysti uppslátturinn í gatamynstri í hlið). Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist ca 24-26-26-26-25-24 cm – stillið af að endað sé eftir 1., 2. umferð, 14.-18. umferð eða 30.-34. umferð í A.2. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 19-23-27-31-36-42 lykkjur og aukið jafnframt út 6-6-6-8-9-9 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 61 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 19-23-27-31-36-42 lykkjur og aukið jafnframt út 6-6-6-8-9-9 lykkjur jafnt yfir *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 222-238-254-278-302-326 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 25-29-33-39-45-51 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki hér. Þetta er núna byrjun á umferð. Nú er prjónað stroff. Það eru 2 útgáfur af stroffi yfir 61 lykkjur í mynstri. Ef endað er eftir 1., 2. eða 30.-34. umferð í A.2 er prjónað stroff-1, ef endað er eftir 14.-18. umferð í A.2 er prjónað stroff-2. Stroff-1: * Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 18 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 21 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 18 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 50-58-66-78-90-102 lykkjur *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Stroff-2: * Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 61 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 50-58-66-78-90-102 lykkjur *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 57-65-73-77-87-95 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-16 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 65-73-81-89-99-111 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermum. Prjónið mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð XS, S og M: Haldið áfram hringinn með eins mörg gatamynstur og pláss er fyrir í umferð. Þær lykkjur sem eftir eru undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 4 cm, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 0-10-5 cm millibili alls 1-3-6 sinnum = 63-67-69 lykkjur. Prjónið nú áfram eins og útskýrt er að neðan. Stærð L, XL og XXL: Haldið áfram hringinn með eins mörg gatamynstur og pláss er fyrir í umferð. Þær lykkjur sem eftir eru undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Jafnframt í fyrstu umferð er lykkjum fækkað undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2-5-9 sinnum, síðan með 4-3-2 cm millibili alls 7-8-9 sinnum = 71-73-75 lykkjur. Allar stærðir: Haldið áfram þar til ermin mælist 38-40-39-37-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 23-23-25-23-25-23 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 42-44-43-41-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (67)
Rhoda wrote:
I needed an explanation as from the rib how do you divide as into the diagrams. to place 23 stitches midback, where ? And then to incorporate the actual pattern explanation is my difficulty. By the time rib is finished, it is at the back, it doesnt balance. If feel like not explaining properly , don't bother replying
01.06.2024 - 20:40DROPS Design answered:
Dear Rhoda, after you have worked the rib and the ridge, just insert a marker after 23 stitches from beg of round. This marker will be then used to measure yoke from. Work then pattern just as described under YOKE inserting markers for raglan and working diagrams/increasing for raglan as described for your size. Happy knitting!
03.06.2024 - 08:36Rhoda wrote:
Do you have a video showing how to knit the patterns A.1,A.2,A.3 after the neck rib? I don`t understand the concept at all. what does it mean to begin on 5th stitch in A.4?
31.05.2024 - 06:35DROPS Design answered:
Dear Rhoda, we don't have any specific video to these diagrams, but in this lesson we show how to read diagrams; to get A.4 placed as desired, you will start the diagram with the stated stitch, so 5th in your size, this means work the diagram A.4 from the 5th stitch to the end towards the right (8 sts) then work the first 3 sts in diagram (new repeat in width) = you have now worked 11 sts in A.4, then incorporate the new stitches increased in the pattern. Happy knitting!
31.05.2024 - 07:53Marissa wrote:
Qué significa en empezar en el 4° punto en talla L en el patrón A2. Que tejo 3 puntos derecho y luego empiezo con el patrón A2? Esta sección se va agrandando de a 2 puntos vuelta por medio, repito el patrón partiendo desde el 4° punto del mismo? Veo que si hago eso hago eso más arriba está el diseño partido por la mitad en el 4° punto. me puedes aclarar?
29.02.2024 - 14:58DROPS Design answered:
Hola Marissa, cuando dice: comenzar en el 4º punto del diagrama significa que, en el diagrama, empiezas a contar los símbolos, de derecha a izquierda, como cuando lees el diagrama y empiezas a trabajar el diagrama desde el 4º símbolo en el diagrama. No tienes que trabajar 3 derechos y luego seguir, sino que desplazas todo el dibujo, empezando en un símbolo diferente del diagrama. De aquí en adelante, en las siguientes vueltas, comienzas a trabajar el diagrama en el mismo símbolo (el 4º símbolo desde la derecha).
29.02.2024 - 23:07Elena wrote:
Thank you for your reply. What about A2? Do I also keep repeating it all ? I finished A2 one time but now if I try to continue it from the beginning of the diagram (repeat), stitches do not match.
15.01.2024 - 07:25DROPS Design answered:
Dear Elena, repeat A.2 in height continuing to work the new stitches into A.2 as before, make sure the lace pattern is always lined up to keep pattern. Happy knitting!
15.01.2024 - 10:12Elena wrote:
Hello, I am doing size M , at yoke I finished A5,A2 and A6. What do I do next to continue with that same model? Thank you,
12.01.2024 - 22:58DROPS Design answered:
Dear Elena, when you are about to start the 3rd repeat of A.5 and A.6 change to A.4 and work in the body as in the sleeves (A.4 the whole round, with knit stitches between the yarn overs in the pattern and increases for the raglan). After finishing all raglan repeats continue with A.4 without increases until piece reaches the correct measurements for your size. Happy knitting!
14.01.2024 - 23:17Lief Cannaerts wrote:
Een stomme vraag , maat M boord is klaar ,verdelen is 24, 15,49,15 ,25 start is toch bij midden rig, 24 st tel patroon A1 ,35 st A2 De start is dat de reglan ,al als ik de steken samen tel kom ik niet op 128 maar wel 120.?
28.09.2023 - 10:33DROPS Design answered:
Dag Lief,
Als ik de steken optel (49+15+49+15) kom ik toch op 128 steken in totaal uit.
03.10.2023 - 06:48Katharina wrote:
Hallo, ich habe eine Frage wegen dem Muster in A4: ich verstehe leider nicht ganz, wie ich das stricken soll (ich stricke in XS). Wie stricke ich in Reihe 9 und 11, wo das Lochmuster beginnt, wenn ich aber erst bei der 5. Masche starte? Und wie mache ich das mit der Zunahme? Stricke ich immer einfach eine rechte Masche zwischen Muster und Raglanzunahme? Ich würde mich sehr freuen über Hilfe! Viele Grüße, Katharina
08.09.2023 - 22:41DROPS Design answered:
Liebe Katharina, in diese Größe beginnen Sie ab 5. Masche, = dh 2 Maschen rechts zusammen, 1 Umschlag, dann 6 Maschen rechts, dann stricken Sie die erste 3 Maschen in A.4 (= 1 M re, 1 Umschlag, 1 Abnahme) - so haben Sie 11 Maschen in A.4 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
11.09.2023 - 08:32Ehiztari wrote:
Hay otro error en la traducción al español. Cuando se comienza la cenefa del cuerpo hay que tejer * 19-23-27-31-36-42 puntos del derecho aumentando 6-6-6-8-9-9; luego tejer los 61 siguientes según se presentan y de nuevo tejer 19-23-27-31-36-42 puntos del derecho aumentando (NO disminuyendo, como pone en el patrón) 6-6-6-8-9-9* . Repetir de * a *
25.03.2023 - 16:07Charlotte wrote:
Hello I’m working size M and am confused about what stitch I start with in A4 when on row 11, as the 4th stitch is a k2tog, followed by psso. However there is no slipped stitch if I start with the k2tog? Please help. Thanks
09.03.2023 - 13:36DROPS Design answered:
Dear Charlotte, on 11th row in A.4 work: k2, YO, slip 1 stitch knitwise, knit 2 stitches together, pass slipped stitch over stitches worked together, YO, K7 (= 12 sts). Happy knitting!
10.03.2023 - 09:18Wil Kerkmeer wrote:
Goedemorgen, voor maat L, begin ik A4 in de 4e steek, 13 steken, dus 9 steken tot het eind en dan weer 4 steken op dezelfde regel. De volgende naald weer verder in de volgende regel ook starten in de 4e steek, klopt dit? Vrgr
26.02.2023 - 08:07DROPS Design answered:
Dag Wil,
Ja, je moet op de volgende naald inderdaad ook weer op de 4e steek in A.4 beginnen.
26.02.2023 - 18:58