DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Ice Castles Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Puna eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 218-3
DROPS Design: Mynstur pu-046
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-450-500-550-600 g litur 01, natur

eða notið:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-400-450-500-550 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm, 60 cm og 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 225 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 25.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 25. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 24. og 25. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, áður en lykkjum er fækkað fyrir ermakúpu og ermin heldur áfram og er prjónuð fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 207-225-243-261-288-315 lykkjur á hringprjón 4 með Puna eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan mynstur yfir allar lykkjur eftir A.1 (= 23-25-27-29-32-35 mynstureiningar með 9 lykkjum í umferð). Haldið áfram með A.1 yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 15-16-17-18-19-20 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 á hæðina. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 204-216-240-264-288-312 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, eitt í byrjun á umferð og eitt eftir 102-108-120-132-144-156 lykkjur = hliðar. Prjónið síðan mynstur þannig – frá byrjun á umferð: A.2 yfir fyrstu 14-17-23-29-35-41 lykkjur (endið með 2 fyrstu lykkjurnar í A.2), A.3 (= 12 lykkjur), A.4 (= 8 lykkjur), A.5 (= 34 lykkjur), A.4, A.3, A.6 yfir næstu 28-34-46-58-70-82 lykkjur (endið með fyrstu lykkjur í A.6), A.3, A.4, A.5, A.4, A.3, A.6 yfir síðustu 14-17-23-29-35-41 lykkjur (endið á 2 fyrstu lykkjum í A.6).

Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 3-3-3-4-4-4 fyrstu lykkjurnar í umferð, prjónið 96-102-114-124-136-148 lykkjur, fellið af 6-6-6-8-8-8 lykkjur, prjónið 96-102-114-124-136-148 lykkjur, fellið af síðustu 3-3-3-4-4-4 lykkjurnar. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 96-102-114-124-136-148 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir síðustu 96-102-114-124-136-148 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 96-102-114-124-136-148 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1-1-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-2-4-5-6-8 sinnum = 90-94-98-102-108-112 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fellið af miðju 38-40-40-42-42-44 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við háls = 25-26-28-29-32-33 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (= 23-24-25-26-27-28 cm frá byrjun á handveg), fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 96-102-114-124-136-148 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 90-94-98-102-108-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-49-51 cm, setjið miðju 30-32-32-34-34-36 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 25-26-28-29-32-33 lykkjur eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (= 23-24-25-26-27-28 cm frá byrjun á handveg), fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 54-54-54-63-63-63 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Puna eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan mynstur yfir allar lykkjur eftir A.1 (= 6-6-6-7-7-7 mynstureiningar með 9 lykkjum í umferð). Haldið áfram með A.1 yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 11 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 á hæðina. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 54-56-58-60-64-66 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið síðan áfram þannig: 1 lykkja sléttprjón, prjónið A:2 yfir næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur, endið með 1 lykkju sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 17-18-20-21-23-24 sinnum = 88-92-98-102-110-114 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-46-45-43-42-40 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermi fram og til baka. Fækkið lykkjum fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 4-4-4-5-5-6 sinnum, 1 lykkja 0-0-1-2-3-4 sinnum. Síðan er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 52 cm í öllum stærðum, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 53 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með Puna eða Soft Tweed og stutta hringprjóna 4 – prjónið upp ca 96 til 106 lykkjur (meðtaldar lykkjur frá þræði og deilanlegar með 2). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2020
Leiðrétting: Ný mynsturteikning A.5.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.12.2020
Leiðrétting í mynsturteikningu A.3.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkjuna af kaðlaprjóni brugðið
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Nina Davidson wrote:

Hi Please disregard yesterday’s comment/question ..... I can now see what is going on - very good!

15.07.2021 - 01:27

country flag Nina wrote:

I’m knitting the smallest size (204 stitches in the body). I’m struggling to understand where the pattern lies ..... you only do A.2 once (14 stitches). I assumed the 2 markers are placed at the sides i.e. 102 stitches each for front and back so how does doing A.2 once only fit into the pattern - front and back are different?? Please explain. I’m considering re jigging the sections to make front and back the same (leave out A.2).

14.07.2021 - 07:56

country flag Diana Seifert wrote:

Thank you very much!!!

01.06.2021 - 14:16

country flag Diana Seifert wrote:

How can I work A3, A4 and A6 ( together 20 stitches) over 28 stitches? \r\nOr how can I work A.3, A.4, A.5, A.4, A.3, A.6 over the last 14 ? Thank you sooo much.

31.05.2021 - 16:20

DROPS Design answered:

Dear Diana, it is always easier to answe if you specifya wich part you need help with (Sleeves? Front? ), and which size, the question relates to, I am just going to assume, that is the smalles size and the BODY at the beginning of the pattern. In there, you need the work A.3, THEN, A.4, and THEN repeat ,A.6 over 28 stitches (5 repeat + the first stitch). Then A.3, A.4, A.5, A.4, A.3,, and THEN repeat A.6 over the last 14 stitches (3 repeats + the first 2 stitches). Happy Knitting!

31.05.2021 - 16:40

country flag Diana Seifert wrote:

Hi, \r\nThank you for your quick response.\r\nBODY:\r\n Then work pattern as follows - from beginning of round: A.2 over the first 14-17-23-29-35-41 stitches (finish with the first 2 stitches in A.2), A.3 (= 12 stitches), A.4 (= 8 stitches), A.5 (= 34 stitches), A.4, A.3, A.6 over the next 28-34-46-58-70-82 stitches (finish with first stitch in A.6), A.3, A.4, A.5, A.4, A.3, A.6 over the last 14-17-23-29-35-41 stitches (finish with the first 2 stitches in A.6).

31.05.2021 - 16:18

country flag Diana wrote:

Hi Thank you for this knitting pattern I have one question: I do the ice castle sweater, size s How can I knitter a3, a6, and a4 (23) ober 28 ? That makes no sense. Thank you.

30.05.2021 - 21:06

DROPS Design answered:

Dear Diana, please tell us, exactly which part of the pattern you need help with?

31.05.2021 - 02:40

country flag Glenys Gallagher wrote:

Can I ask when initially decreasing for the sleeve head I am decreasing 2 stitches each side for a total of 8 rows, and 1 stitch for a total of 2 rows leaving me with 80 stitches. Do I then continue to decrease 2 at each end of every row until 52cms ? The sleeve head doesn't look like it will fit in to the body wormhole, it looks far too short.

18.04.2021 - 18:41

DROPS Design answered:

Dear Glenys, when you are making the sleeve cap, you first sast off 3-3 stitches on both side of the marker (all together 6 stitches), then 2-2 stitches at the beginning of each row 8 times (that is 2 stitches cast of 4 times (= 8 stitches) on each side (all together 16 stitches), and then 1 stitch 0-0-1-2-3-4 times (depending on size), and cast off 2 stitches at the beginning of each row (thus you are casting off both side), until the piece us 52 cm long. Happy Knitting!

18.04.2021 - 22:31

country flag Glenys Gallagher wrote:

Is there a video that demonstrates casting off in the round. In splitting the front and the back I cast off 3 stitches at the beginning, 6sts in the middle but when I come to cast off the last 3 sts (to make the second total of 6) I have 1 stitch left on my needle ( in the middle of the 6). Thanks

25.03.2021 - 23:04

DROPS Design answered:

Hi Glenys, For this last stitch you cut the strand and pull it through the stitch. Then begin on the back piece. Happy knitting!

26.03.2021 - 07:48

country flag Marlena Otsuka wrote:

Hello, I have question reg. the Sleeve for size S After the 17 Increases (to 88 Stitches), what length should my piece be for Size S, 18" or 14 3/4"? Thank you, Marlena

19.03.2021 - 03:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Otsuka, the last increase on sleeve should be worked when piece measures approx. 17,36 inches (= approx. 44 cm). Happy knitting!

19.03.2021 - 07:40

country flag Glenys Gallagher wrote:

I am doing the large,size, after the first section the stitches go down to 240 but the repeats of pattern are on 259 stitches, is it offset all the way round by 19 stitches ? Thank you

15.03.2021 - 11:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gallagher, work the 240 sts as follows: A.2 over the first 23 sts (repeat the 3 sts in diagram a total of 7 times and finish with the first 2 stitches), A.3 (= 12 sts), A.4 (= 8 sts), A.5 (= 34 sts ), A.4 (= 8 sts), A.3 (= 12 sts), A.6 over the next 46 (repeat the 3 sts a total of 15 times and finish with first st in A.6), A.3 (= 12 sts), A.4 (= 8 sts), A.5 (=34 sts), A.4 (= 8 sts), A.3 (= 12 sts), A.6 over the last 23 stitches (repeat the 3 sts in diagram a total of 7 times and finish with the first 2 stitches) = 23+12+8+34+8+12+46+12+8+34+8+12+23= 240 sts. Happy knitting!

15.03.2021 - 13:11